Sólin gæti látið sjá sig í borginni

Von er á betra veðri á suðvesturhorninu.
Von er á betra veðri á suðvesturhorninu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í dag má búast við suðaustlægri eða breytilegri átt, víða verða 3 til 10 metrar á sekúndu og skúrir, en norðaustan til á landinu verður lengst af þurrt og bjart veður. Hiti verður 9 til 19 stig, hlýjast austanlands. 

Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands að síðustu vikur hafi suðlægar áttir verið ríkjandi með þurru og hlýju veðri á norðaustanverðu landinu, en á morgun kveður við annan tón. Lægð nálgast þá landið úr suðaustri og fylgir henni norðaustangola eða kaldi með rigningu eða súld á köflum víða um land, en úrkoman verður því sem næst samfelld á Austurlandi. 

Suðvestan til á landinu verður hins vegar þurrt að mestu og sólin gæti látið sjá sig af og til. Hiti verður 8 til 17 stig, hlýjast á Suðurlandi. 

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:
Norðan og norðaustan 5-13 m/s og rigning með köflum, einkum A-lands, en þurrt að kalla SV-til. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á S-landi.

Á miðvikudag:
Norðlæg átt 5-10 og súld eða dálítil rigning með köflum, hiti 7 til 14 stig. Bjartviðri um landið SV-vert og hiti 13 til 20 stig yfir daginn

Á fimmtudag:
Norðlæg átt 5-13 og léttskýjað um landið S-vert. Áfram dálítil væta á N- og A-landi, en styttir upp þar seinnipartinn. Hiti 8 til 22 stig, hlýjast S-lands.

Á föstudag, laugardag og sunnudag:
Norðlæg eða breytileg átt og bjart með köflum. Hiti 10 til 19 stig, en heldur svalara fyrir norðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert