Aukin hætta á ofanflóðum á morgun Árni Sæberg skrifar 4. febrúar 2023 17:49 Krapaflóð féll á Patreksfirði í síðustu viku og ekki er hægt að útiloka að það gerist aftur á morgun. Aðsend Gert er ráð fyrir hlýindum um allt land á morgun, sunnudag, og Veðurstofa Íslands varar við aukinni hættu á votum snjóflóðum. krapaflóðum og skriðuföllum. Í tilkynningu segir að ekki sé hægt að útiloka að krapaflóð falli aftur á Patreksfirði, líkt og gerðist í síðustu viku.
Í tilkynningu á vef Veðurstofunnar segir að ásamt hlýindunum sé búist við hvassri eða allhvassri sunnanátt. Þá sé búist við ákafri rigningu á sunnan- og vestanverðu landinu. Þar sem ekki rignir gætu hlýindi og hnjúkaþeyr valdið hraðri snjóbráðnun. Við þær aðstæður aukist líkur á votum snjóflóðum, krapaflóðum og skriðuföllum. Á svæðunum þar sem ekki rignir sé töluverður snjór og þar séu vot snjóflóð líklegri en krapaflóð og skriðuföll. Svipaðar aðstæður og fyrir viku Í tilkynningunni segir að svipaðar aðstæður verði á Patreksfirði á morgun og þegar krapaflóð féll í Gilseyrargili á Patreksfirði fyrir rúmri viku síðan. „Núna virðist vera álíka mikill snjór eða ívið meiri í gilinu, og er ekki hægt að útiloka svipaðan atburð aftur,“ segir í tilkynningu. Í spilaranum hér að neðan má sjá myndskeið sem tekið var á Patreksfirði í síðustu viku. Þá segir að þann 26. febrúar síðastliðinn hafi einnig fallið krapaflóð ofan Bíldudals, í Arnarfirði og Hnífsdal. Auk þess hafi snjóflóð fallið á Raknadalshlíð í Patreksfirði og jarðvegsskriða utan við Vík í Mýrdal. „Sunnudaginn 5. febrúar eru vegfarendur og ferðafólk hvött til að sýna aðgæslu á stöðum þar sem grjót getur fallið og nærri vatnsfarvegum í brattlendi þar sem krapaspýjur geta borist niður. Íbúar í húsum nærri farvegum þar sem krapaflóð hafa fallið eru hvattir til þess að sýna aðgæslu og ekki dvelja að óþörfu nálægt farvegunum,“ segir í tilkynningu Veðurstofunnar. Þá segir að veðurspá geri ráð fyrir að kólni í veðri annað kvöld og samhliða því ætti að draga úr hættu á votum snjóflóðum, krapaflóðum og skriðuföllum.
Vesturbyggð Veður Náttúruhamfarir Almannavarnir Tengdar fréttir Hættustigi á Patreksfirði aflýst Búið er að aflýsa hættustigi Almannavarna á Patreksfirði vegna krapaflóðs sem féll þar í morgun. Svæðið verður áfram vaktið en búið er að aflétta lokun á svæðinu. 26. janúar 2023 13:27 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjá meira
Hættustigi á Patreksfirði aflýst Búið er að aflýsa hættustigi Almannavarna á Patreksfirði vegna krapaflóðs sem féll þar í morgun. Svæðið verður áfram vaktið en búið er að aflétta lokun á svæðinu. 26. janúar 2023 13:27