Koma mjaldursins afar óvenjuleg Kristín Ólafsdóttir skrifar 9. apríl 2021 21:33 Mjaldurinn í höfninni í dag. Skjáskot Mjaldur synti inn í Reykjavíkurhöfn í hádeginu í dag en staldraði stutt við. Hvalasérfræðingar segja afar óvenjulegt að sjá mjaldra á þessum slóðum, hvað þá eina á ferð.
Mjaldurinn virðist hafa spókað sig í sjónum nokkra stund en látið sig hverfa eftir að stórum togara var siglt inn í höfnina. En fiskisagan flýgur. Þegar fréttastofu bar að garði höfðu nokkrir forvitnir borgarbúar gengið niður að höfn í von um að berja mjaldurinn augum. Þar á meðal tveir hvalasérfræðingar, sem segja komu mjaldursins afar óvenjulega enda Ísland langt frá heimkynnum tegundarinnar. Gísli Víkingsson, hvalasérfræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun, telur nær öruggt að þarna hafi verið mjaldur á ferð í dag. Hvíti liturinn á dýrinu gefi það til kynna. Edda Elísabet Magnúsdóttir, hvalafræðingur hjá Háskóla Íslands, segir komu mjaldursins afar óvenjulega.Stöð 2 „Það eru svosem til albinóar af öðrum tegundum en stærðin og útlitið eins og hægt var að sjá af þessum myndum. Og ekki síst, mér sýndist hann hnykkja til höfðinu en hann er eina tegundin sem hreyfir hausinn, hálsliðina.“ Er þetta algengt, að sjá mjaldra á þessum slóðum? „Alls ekki. Mjaldrar eru hánorrænir hvalir og sérhæfa sig við ísröndina. Þeir fylgja henni og eru algengir við norðurhluta Rússlands og Grænland, austurströnd Kanada. Hér er alls ekki þeirra búsvæði,“ segir Edda Elísabet Magnúsdóttir, hvalasérfræðingur hjá Háskóla Íslands. „En stundum gerist það að við fáum hvalir inn í hafnir og oftast eru þeir á nýjum slóðum og líklegast eitthvað villtir. En blessunarlega flestir koma sér aftur út, sem viðvonum að hafi gerst í þessu tilfelli. Þannig að vissulega, þetta er óvenjulegt.“ Gísli veit síðast til þess að mjaldur hafi sést hér á landi í Steingrímsfirði árið 2013. „Síðan var um þetta leyti, ég man ekki árið, í Borgarfirði eystra um töluvert langt skeið mjaldur sem svamlaði þar og hélt til en fór svo að lokum burt. Þannig að ef þessi hefur farið strax er það auðvitað fínt fyrir hann,“ segir hann. Gísli Víkingsson hvalasérfræðingur hjá Hafrannsdóknarstofnun segir mjaldur síðast hafa sést við Ísland árið 2013.Stöð 2 Þá er koma mjaldursins einnig óvenjuleg fyrir þær sakir að hann kom einn en mjaldrar eru mikil hópdýr og afar félagslyndir. „Þegar þeir eru svona einir á ferð vitum við að þetta er ekki eðlilegt fyrir þá en vonandi koma þeir sér út úr þessum aðstæðum og finna sér hóp á ný,“ segir Edda. Afar fáir mjaldrar hafa sést við Íslandsstrendur frá því skráningar hófust. „Ævar Petersen, sem starfaði á Náttúrufræðistofnun, hann hefur grúskað mikið í sögulegum heimildum um hvalreka og fundið 25 dæmi á síðustu 300 árum. Þetta er mjög óalgengt,“ segir Gísli.
Dýr Reykjavík Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Svona var Pallborðið með mökunum Innlent Óhapp í fyrsta sinn í 25 ára sögu Innlent Kári axlar ábyrgð á stuðningi Víðis og Þórólfs Innlent Dóra vill ekki búa við umræðu byggða á „falsvitnum“ Innlent Apple biðst afsökunar á auglýsingu fyrir nýjan iPad Viðskipti erlent Krefjast þess að HÍ beiti sér með sama hætti gegn Ísrael og Rússlandi Innlent Stefnir í tveggja turna tal Innlent Raðrúðubrjóturinn enn á ferð í miðborginni Innlent Fleiri fréttir Hræðsla við brottvísun, fylgi á fleygiferð og veðjað á leiki barna Ísland greiddi atkvæði með auknum rétti Palestínu hjá SÞ Auknar líkur á nýju eldgosi á næstu dögum Reyndi að drepa mann eftir að upp úr sauð á gamlárskvöld Kári axlar ábyrgð á stuðningi Víðis og Þórólfs Stefnir í tveggja turna tal Guðmundur í Afstöðu hundskammar DV Stórri flotaæfingu NATO lauk í Reykjavík „Þegar hann loksins náði að bjóða mér út missti ég hnén“ Rafmagnslaust í Vesturbænum Viðhorf breytist ekki við það bara að klæða sig í lögreglubúning Þrír sóttu um stöðu dómara við Landsrétt Óhapp í fyrsta sinn í 25 ára sögu Dóra vill ekki búa við umræðu byggða á „falsvitnum“ Einn fluttur eftir þriggja bíla árekstur Óska eftir frekara gæsluvarðhaldi Skjálftahrina og skyndilegt brotthvarf þjálfara Raðrúðubrjóturinn enn á ferð í miðborginni Svona var Pallborðið með mökunum Mögulegt strok á laxi úr landeldi Laus úr haldi en enn grunaður um græsku Opna Laugardalslaug á ný Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Flóttamannastofnun SÞ gerir athugasemdir við útlendingafrumvarpið Krefjast þess að HÍ beiti sér með sama hætti gegn Ísrael og Rússlandi Tveir fluttir á Landspítala eftir árekstur á mótorkrossbrautinni í Mosfellsbæ Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Stöðugt landris og hugað að rýmingu Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Sjá meira