Hugbúnaðarfyrirtækið Plaio hefur ráðið til sín þrjá nýja hugbúnaðarsérfræðinga, Söru Árnadóttur, Eggert Gíslason og Andra Svein Ingólfsson.
Plaio þróar gagn- og sjálfvirkar framleiðslustýringalausnir sem byggjast á gervigreind fyrir lyfjaframleiðslu en í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að það hafi bætt við mannskapinn til að styðja við hraðan vöxt fyrirtækisins.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að Sara verði nýr leiðtogi hugbúnaðarþróunar. Undanfarin ár hefur hún starfað við framendaforritun hjá Hugsmiðjunni og Code North, hjá Símanum Pay við bæði framenda- og bakendaforritun og sinnt aðstoðarkennslu hjá Háskólanum í Reykjavík.
Sara verður hópstjóri í þróun og framleiðslu á sjálfvirknivæðingu hugbúnaðarlausnar Plaio. Hún er með M.Sc.- og B.Sc.-gráðu í hugbúnaðarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og lokaverkefni hennar í M.Sc.-náminu var unnið í samstarfi við Plaio.
Eggert Gíslason er sérfræðingur í hugbúnaðarþróun en hann hefur 25 ára reynslu af hugbúnaðargerð fyrir íslenskan fjármálamarkað. Eggert kemur frá five°degrees þar sem hann hefur starfað allt frá kaupum félagsins á Libra ehf. þar sem hann leiddi veflausnir félagsins frá árinu 2010.
Áður vann Eggert við smíði veflausna fyrir Origo og TM Software og þeirra viðskiptavini. Eggert er forritari og framendahönnuður en hefur jafnhliða starfað sem hópstjóri og arkitekt að umfangsmiklum vefverkefnum fyrir fjölbreytta viðskiptavini, mest á fjármálasviðinu.
Andri Sveinn Ingólfsson er sérfræðingur í hugbúnaðarþróun en hann er að ljúka M.Sc. námi í rekstrarverkfræði frá HR, hann hefur lokið B.Sc.-námi, bæði í tölvunarfræði og rekstrarverkfræði. Andri Sveinn vann lokaverkefni sitt í M.Sc.-náminu í samstarfi við Plaio.