Stórleikur Ómars Inga dugði ekki til sigurs Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. nóvember 2020 16:45 Ómar Ingi í leiknum í dag. Hendrik Schmidt/Getty Images Ómar Ingi Magnússon var hreint magnaður í liði Magdeburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Því miður dugði það ekki til sigurs. Þá lék Oddur Gretarsson með Balingen-Weilstetten sem tapaði á heimavelli.
Oddur var á sínum stað í liði Balingen-Weilstetten sem tapaði með sjö marka mun fyrir Flensburg á heimavelli, lokatölur 25-32. Gísli Þorgeir lék með Magdeburg sem mátti þola tap gegn Leipzig á útivelli, lokatölur 33-29 Leipzig í vil. Ómar Ingi og Gísli Þorgeir Kristjánsson voru í eldlínunni með Magdeburg. Leipzig var alltaf skrefi á undan og eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í hálfleik, 16-14, þá fór það svo að Leipzig vann fjögurra marka sigur. Lokatölur 33-29 þrátt fyrir hetjulega frammistöðu Ómars Inga ásamt mjög góðum leik hjá Gísla. Alls skoraði Ómar Ingi 11 mörk í leiknum, þar af sex úr vítum, ásamt því að gefa fjórar stoðsendingar. Kom hann því með beinum hætti að meira en helming marka Magdeburg í leiknum. Gísli Þorgeir skoraði þrjú mörk ásamt því að gefa eina stoðsendingu. Oddur og samherjar hans í Balingen-Weilstetten voru í vandræðum frá upphafi til enda í dag. Liðið skoraði aðeins níu mörk í fyrri hálfleik og var sjö mörkum undir er flautað var til hálfleiks, staðan þá 9-16. Sóknarleikur liðsins í síðari hálfleik var skárri en varnarleikurinn alveg eins og í fyrri hálfleik. Það var því enn sjö marka munur er flautað var til leiksloka, lokatölur 25-32 fyrir Flensburg. Oddur skoraði eitt mark í leiknum. Magdeburg er í 12. sæti deildarinnar og Balingen-Weilstetten í 16. sæti.
Handbolti Íslenski handboltinn Mest lesið Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Íslenski boltinn Syrgir fimmtán mánaða son sinn Sport „Real Madrid lofaði mér að ég yrði arftaki Modric“ Fótbolti „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Enski boltinn Hundfúll og ýtti ungum KR-krökkum frá sér: „Ekki fallegt að sjá“ Íslenski boltinn LeBron James gæti hafa spilað kveðjuleik sinn Körfubolti Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Enski boltinn Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Íslenski boltinn Bara Eiður Smári og Bjargvætturinn höfðu skorað fyrir sextán ára afmælið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Teitur Örn og félagar í undanúrslit þrátt fyrir tap Í beinni: Valur - ÍBV | Valskonur geta sópað ÍBV út Aldís Ásta frábær þegar Skara komst í undanúrslit Sigvaldi Björn markahæstur þegar Kolstad komst í úrslit Hrafnhildur Anna til Stjörnunnar Sveinn til Kolstad og vill ólmur læra af Gullerud Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sveinn í sigti Kolstad FH-ingar skrefi nær úrslitaeinvíginu Bjarki Már atkvæðamikill í dramatískum sigri Bjarni í Selvindi semur við Val Norðmenn töpuðu milljónum á því að halda HM í handbolta „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Sjá meira