Sinueldur í Mosfellsbæ

Sinueldur kviknaði í Mosfellsbæ.
Sinueldur kviknaði í Mosfellsbæ. mbl.is/Tobias Hausner

Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um sinueld í Mosfellsbæ klukkan 18.15.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu eru slökkviliðsmenn að reyna að slökkva eldinn. Hann telur að þeir verði fljótir að ráða niðurlögum hans.

Einn bíll var sendur á vettvang en sinueldurinn varð í grennd við Böðvarshaga, fyrir neðan hringtorgið þar sem ekið er inn í Mosfellsdal.

mbl.is/Tobias Hausner
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert