Enginn afsláttur gefinn af réttindum barna

Milljónir barna glíma við næringarskort.
Milljónir barna glíma við næringarskort. Ljósmynd/Aðsend

UNICEF á Íslandi heldur uppteknum hætti á afsláttardeginum mikla Black Friday og býður nú 100 pakka af næringarríku jarðhnetumauki á 50% HÆRRA verði en venjulega á vef sínum, Sannargjafir.is.

UNICEF segist í tilkynningu ekki gefa neinn afslátt af réttindum barna og baráttunni við hungur í heiminum.

Nú dynja á okkur nær daglega fréttir af skelfilegu ástandi barna um allan heim sem glíma við næringarskort og ekkert fæðuöryggi, til dæmis í Afganistan, Jemen, Madagaskar og Eþíópíu. Jarðhnetumaukið gerir kraftaverk í meðhöndlun vannærðra barna og hefur um árabil verið ein vinsælasta varan á Sannargjafir.is,“ segir í tilkynningunni.

Gjöfin er keypt á netinu, kaupandi fær gjafabréf í tölvupósti og UNICEF kemur hjálpargögnum til barna þar sem þörfin er mest.

„Hungur og neyð er eitthvað sem ekkert barn ætti að þurfa að búa við. Milljónir barna glíma við næringarskort en það er til einföld og ódýr lausn. Við hækkum því verðið á jarðhnetumaukspakkanum okkar um 50% í tilefni dagsins, en engar áhyggjur. Upphæðina sem greidd er aukalega nýtir UNICEF einungis til að kaupa enn fleiri hjálpargögn fyrir börn í neyð,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

„Á Svörtum föstudegi má víða gera kjarakaup en oft endar ýmislegt sem við þurfum ekki í innkaupakörfunni okkar. Með Sönnum gjöfum UNICEF getur þú alltaf verið viss um að vera að kaupa gjafir sem skipta máli og bjarga lífum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert