Aukinn hagnaður Sýnar milli ára Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. maí 2022 17:47 Heiðar Guðjónsson er forstjóri Sýnar. Hagnaður Sýnar á fyrsta ársfjórðungi ársins nam 207 milljónum krónum samanborið við 231 milljóna króna tap á sama tímabili í fyrra. Tekjur félagsins á ársfjórðungnum námu 5,7 milljörðum krónum og jukust um tæplega 700 milljónir á milli ára.
Þetta kemur fram í tilkynningu Sýnar til Kauphallar í dag. Árshlutareikningur samstæðu Sýnar fyrir fjórðunginn var samþykktur á stjórnarfundi í dag. Á fjórðungnum var fært tap af sölu færeyska hlutdeildarfélagsins Hey upp á 189 milljónir króna. EBITDA hagnaður nam 1,7 milljarði króna samanborið við tæplega 1,4 milljarða á sama tímabili í fyrra. Handbært fé frá rekstri á fjórðungnum nam 1,1 milljarði samanborið við 542 milljónir á sama tímabili árið áður, sem er hækkun um 104%. Heildarfjárfestingar á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022 námu 819 milljónum króna þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 285 milljónir króna og fjárfesting í sýningarréttum 531 milljón króna. Fjármögnunarhreyfingar á fyrsta ársfjórðungi voru neikvæðar um 2,4 milljörðum á móti 320 milljónum á sama tímabili árið 2021 sem er tæplega 2,1 milljarðs króna hækkun. Í tilkynningu segir að hækkunin skýrist að mestu af kaupum á eigin bréfum. Eiginfjárhlutfall félagsins var 27,2% í lok fyrsta fjórðungs ársins 2022. Í ársbyrjun 2022 ákvað stjórn að setja í gang endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Endurkaupaáætlunin hófst með öfugu útboði þann 7. janúar sem lauk 9. janúar. Til viðbótar voru sett í gang regluleg endurkaup sem stóðu yfir frá 13. janúar til 3. mars. Félagið keypti í heild 28.064.512 hluti eða 9,47% af útgefnu hlutafé fyrir tæplega 1,9 milljarða króna. Á aðalfundi félagsins þann 18. mars var samþykkt tillaga stjórnar um að lækka hlutafé í samræmi við fjölda eigin hluta. Lækkunin var framkvæmd þann 12. apríl og eru útgefnir hlutir í félaginu 268.376.962 eftir lækkunina. „Það er ánægjulegt að segja frá því að innri tekjuvöxtur er 14% á milli ára. Við höfum haldið aftur af rekstrarkostnaði, sem hækkar minna en verðlag, og því eykst rekstrarhagnaður af reglulegri starfsemi (EBIT) um 359 m.kr. Við skilum ríflega 200 m.kr. hagnaði af reglulegri starfsemi á fyrstu 3 mánuðum ársins,“ segir Heiðar Guðjónsson forstjóri. „Vegna árstíðarsveiflu í rekstri fyrirtækisins eykst afkoman jafnan þegar líða tekur á árið. Ofan á það bætist fyrirsjáanlegur vöxtur í starfseminni vegna bættrar þjónustu, nýs vöruframboðs og uppbyggingar 5G og tengdrar tækni. Við erum því á góðri leið með að ná afkomu af reglulegri starfsemi upp í 100 m.kr. á mánuði að meðaltali yfir árið. Frjálst fjárflæði er einnig mjög sterkt og eykst um 603 m.kr. á tímabilinu. Ýmsir þættir rekstrar sem fóru úr skorðum vegna COVID koma nú jákvæðir inn í rekstur þegar líða tekur á árið. Við sjáum strax aukningu tekna hjá Endor, aukningu í reiki, auk þess sem auglýsingasala er á góðri uppleið. Hvað varðar fjölmiðlarekstur þá eru auglýsingar í fyrsta skipti uppseldar á Vísi á tímabili fyrsta ársfjórðungs. Útvarpsrekstur gengur vel og einnig er vöxtur í kringum sjónvarpsrekstur en erlendis hafa minni samkomutakmarkanir haft neikvæð áhrif á rekstur tengdum sjónvarpi. Við skiluðum um 2 milljörðum til hluthafa á fyrsta fjórðungi ársins í gegnum endurkaup á eigin hlutabréfum og stefnum á að gera meira af því á þessu ári. Eftir breytingar á lögum um upplýsingaskyldu skráðra félaga þá höldum við ekki sérstakan fund í kringum þetta uppgjör. Við verðum með ítarlegar kynningar í kringum hálfsárs- og ársuppgjör. Eins og áður er hægt að senda okkur spurningar eða óska eftir fundi.“ Vísir er í eigu Sýnar.
Kauphöllin Fjarskipti Fjölmiðlar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Eyða 42 milljörðum í hrekkjavökubúninga á gæludýrin sín Viðskipti erlent Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Fleiri fréttir Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Sjá meira