Leikskóladeild lokað vegna smits

Árholt.
Árholt. mbl.is/Þorgeir

Leikskóladeildinni Árholti í Glerárhverfi á Akureyri var lokað í morgun eftir að barn þar greindist með kórónuveiruna. Allt starfsfólk leikskóladeildarinnar og börn eru farin í varúðarsóttkví vegna smitsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarbæ.

Í Árholti hafa verð 17 börn og 7 starfsmenn en deildin tilheyrir leikskólanum Tröllaborgum.

Enn fremur kemur fram á vef Rúv að barnið hafi verið sótt á leikskólann í gær þegar í ljós kom að foreldri þess var smitað af veirunni. Jákvæð niðurstaða úr skimun barnsins lá svo ljós fyrir í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert