Osaka vann Opna ástralska örugglega

Naomi Osaka hæstánægð með bikarinn sem hún vann sér inn …
Naomi Osaka hæstánægð með bikarinn sem hún vann sér inn með sigri á Opna ástralska meistaramótinu í tennis í morgun. AFP

Japanska tenniskonan Naomi Osaka vann öruggan sigur á Bandaríkjakonunni Jennifer Brady í úrslitaleik Opna ástralska meistaramótsins í morgun.

Osaka vann með tveimur settum, 6:4 og 6:3, og tryggði sér þar með annan titil sinn á Opna ástralska. Vann hún mótið sömuleiðis árið 2019.

Osaka hefur nú unnið fjóra stóra titla í tennis og er taplaus í úrslitaleikjum. Vann hún einnig Opna bandaríska meistaramótið á síðasta ári og árið 2018.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert