Píratar vilja þrýsta útlendingafrumvarpi aftur til nefndar Heimir Már Pétursson og Vésteinn Örn Pétursson skrifa 1. febrúar 2023 18:07 Þórhildur Sunna segir mál dómsmálaráðherra vont og illa unnið. Vísir/Vilhelm Þingmenn hafa rætt frumvarp dómsmálaráðherra um útlendingalög í þrjátíu og eina klukkustund frá því Alþingi kom saman eftir áramót. Þingflokksformaður Pírata segir frumvarpið meingallað og brjóta á mannréttindum flóttafólks. Stjórnarflokkarnir gætu lokið umræðunni með því að kalla málið aftur til nefndar til lagfæringar.
Frumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra til breytinga á lögum um útlendinga er vægast sagt umdeilt. Ekki tókst að ljúka umræðunni fyrir áramót þegar það var rætt í 41 klukkustund á Alþingi. Frumvarpið hefur síðan verið nánast eina málið á dagskrá þingsins eftir áramót. Að loknum þingfundi rétt fyrir miðnætti í gær hafði málið verið rætt í 31 klukkustund í janúar, eða samanlagt í 72 klukkustundir frá því umræður hófust fyrir áramót eða í þrjá sólarhringa. Stjórnarliðar séu hvattir til að hlusta ekki Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata segir ómögulegt að segja til um á þessari stundu hvenær umræðunni gæti lokið. En þingmenn Pírata voru einir í rúmlega níu klukkustunda umræðum í gær. „Það liggja fyrir mjög neikvæðar og alvarlegar umsagnir frá helstu mannréttindasamtökum á Íslandi. Við erum að tala um Amnesty International, Rauða krossinn, Mannréttindastofnun Háskóla Íslands, Mannréttindaskrifstofu Íslands, Kvenréttindafélag Íslands og svo mætti lengi, lengi telja,“ segir Þórhildur Sunna. Góðar ástæður væru til að ætla að lög af þessu tagi myndu brjóta á réttindum flóttafólks, sér í lagi á réttindum barna á flótta. Því væri mikilvægt að fara í gegnum öll ákvæði frumvarpsins. Stjórnarflokkarnir setja nánast engin önnur mál á dagskrá þingsins og ætla greiniega með því að koma málinu í gegn. „Dómsmálaráðherra Íslands liggur mikið á að koma þessu máli í gegn, áður en hann fer að gera eitthvað annað en það sem hann er að gera. Þannig að mögulega er verið að setja mikinn þrýsting á stjórnarliða að hlusta ekki. Ekki bara á okkur Pírata, sem ég átta mig á að getur stundum verið erfitt, en að hlusta ekki á öll þau samtök í samfélaginu og allt það ákall sem hefur verið í samfélaginu, eftir því að þetta vonda mál. Þetta er illa unnið,“ segir Þórhildur Sunna. Í boði að laga það sem þurfi að laga Stjórnarmeirihlutinn hefði dagskrárvaldið á Alþingi. Píratar og aðrir stjórnarandstöðuflokkar hafi kallað eftir því að málið yrði kallað aftur til nefndar til lagfæringa. Enda hafi stjórnarliðar sjálfir viðurkennt að gera þyrfti breytingar á frumvarpinu og komið með óljósar yfirlýsingar um að það stæði til. „Það væri hægt að stoppa þetta strax með því að kalla inn í nefnd og laga það sem stjórnarliðar segjast þurfa að laga. Þá gætum við tekið umræðuna um þetta mál á réttum forsendum. Þetta er eitthvað sem stendur til boða að gera núna. Kalla bara málið aftur inn í nefnd, laga það sem þarf að laga,“ sagði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.
Hælisleitendur Flóttamenn Alþingi Píratar Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Innlent Fleiri fréttir Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar Sjá meira