Innlent

Gefa sér þann tíma sem þarf

Samúel Karl Ólason og Heimir Már Pétursson skrifa
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins. Vísir/Egill

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir hann og formenn Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna, vilja vanda sig í stjórnarmyndunarviðræðum. Það séu áskoranir í viðræðunum sem hafi ekki verið leystar á síðustu fjórum árum og það sé verið að vinna í því.

Sigurður Ingi sagðist ekki vita hvort þessi vika myndi duga til. Stór alþjóðleg ráðstefna færi fram hér á landi þessa dagana og þau þyrftu að taka einhvern þátt í henni.

„Við sjáum til. Við ætlum að gefa okkur þann tíma sem þarf,“ sagði Sigurður Ingi.

„Við ætlum að finna lausnir. Það er hluti af áskorun næstu fjögurra ára,“ sagði Sigurður Ingi. „Hluti af loftslagslausninni á næstu fjórum árum eru grænar fjárfestingar sem byggjast á grænni orku. Við erum svo heppin hérna á Íslandi að við erum mjög rík. Annars vegar að orku nú þegar en líka af þeim möguleikum að geta gert betur.“

Einn hluti af því væri að virkja meira.

Sigurður Ingi sagði Ísland til að mynda nýta vind mjög lítið samanborið við Norðurlöndin. Danir væru með um fimm þúsund megavött sem kæmu frá vindmyllum og við værum með rúm tvö.

Aðspurður um það að Sjálfstæðisflokknum litist vel á það að fá heilbrigðisráðuneytið sagði Sigurður Ingi að formennirnir myndu ræða það þeirra á milli.

Framsóknarflokkurinn hefði lýst því yfir að þau væru tilbúin í þessar viðræður til að sjá hvernig hægt væri leysa úr læðingi nýja krafta á kjörtímabilinu. Þar á meðal með uppskiptingu ráðuneyta.

Sigurður Ingi samþykkti að tíminn væri ekki óendanlegur en vísaði á skrítna stöðu á þingi þar sem undirbúningsnefnd fyrir kjörbréfanefndina væri enn að störfum. Hans skoðun væri að skynsamlegast væri að þeim störfum lyki áður en ríkisstjórnarviðræður klárast.

Aðspurður um vistaskipti Birgis Þórarinssonar frá Miðflokknum til Sjálfstæðisflokksins sagði Sigurður Ingi það sama og hann sagði í gær. Hann hefði ekki sérstaka skoðun á því að öðru leyti en það virkaði sérstakt að skipta um flokk svo skömmu eftir kosningar.

Hann sagði vistaskiptin þó ekki hafa nein áhrif á viðræðurnar.


Tengdar fréttir

Útilokar að ágallarnir leiði til alþingiskosninga á landsvísu

Útilokað er að Alþingiskosningarnar verði dæmdar ólöglegar á landsvísu vegna meðferðar kjörgagna í Norðvesturkjördæmi að mati dósents í lögfræði. Mikilvægt sé að Alþingi rannsaki og undirbúi niðurstöðu sína að kostgæfni.

Birgir truflar ekki stjórnarmyndunarviðræður

Leiðtogar ríkisstjórnarflokkanna taka fyrir að vistaskipti Birgis Þórarinssonar yfir í Sjálfstæðisflokk hafi áhrif á yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræður. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir litla umræðu hafa átt sér stað innan þingflokksins áður en ákvörðun var tekin.

Áskoranir í viðræðum sem taki tíma

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir áskoranir í stjórnarmyndunarviðræðum hans, Katrínar Jakobsdóttur formanns Vinstri grænna og Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins. Viðræðurnar muni taka minnst einhverja daga til viðbótar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×