Hvalur biður ráðherra um undanþágu til að geta hafið veiðar Sunna Sæmundsdóttir skrifar 24. maí 2023 12:38 Í umsókn Hvals hf. til ráðherra um undanþágu frá starfsleyfi segir að vertíðin hefjist vanalega 15. júní. Vegna óvissu um formlega útgáfu leyfis fyrir þann tíma þurfi fyrirtækið undanþágu. vísir/Egill Hvalur hf. hefur sótt um undanþágu frá starfsleyfi til ráðherra til að geta hafið starfsemi og hvalveiðar í sumar. Samkvæmt úttekt heilbrigðiseftirlits þyrfti að gera úrbætur á frágangi við olíutank áður en slíkt yrði gefið út. Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vesturlands telur samt ólíklegt að leyfið muni stranda á því.
Starfsleyfi Hvals hf. sem lýtur að starfseminni í landi og er gefið út af heilbrigðiseftirliti Vesturlands rann út hinn 1. maí síðastliðinn. Fyrirtækið hefur sótt um endurnýjun á leyfinu og hefur heilbrigðiseftirlitið auglýst drög að því. Fólk hefur hins vegar frest til þess að andmæla útgáfu leyfisins til 9. júní og heilbrigðiseftirlitið þarf að vinna úr athugasemdum áður en nýtt leyfi er gefið út. Þorsteinn Narfason, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vesturlands segir úrvinnsluna fara eftir fjölda athugasemda. „Ég myndi grísa á að þetta verði svona ein vika; ein til tvær vikur. Að það færi bara í forgang hjá okkur að reyna að afgreiða þetta starfsleyfi þannig að það tefji ekki reksturinn.“ En þetta tekur lengri tíma ef athugasemdir eru margar? „Já það má búast við því. Það eru nú ekki allir sáttir við þessa starfsemi þannig það má alveg búast við því að það komi einhverjar athugasemdir við leyfið,“ segir Þorsteinn. Til að tryggja reksturinn hefur fyrirtækið sótt um undanþágu frá starfsleyfi fyrir starfseminni. Í umsókninni sem er stíluð á Guðlaug Þór Þórðarson, umhverfisráðherra, segir að vinnsla á hvalaafurðum hefjist vanalega um 15. júní. Óvíst sé hvort leyfið verði tilbúið í tæka tíð fyrir vertíðina. Í umsókninni til ráðherra kemur fram að starfsemin hafi verið óbreytt síðustu ár fyrir utan að settur hafi verið upp nýr frárennslishreinsibúnaður. „Ekki hægt að fá allt í einu“ Í skýrslu heilbrigðiseftirlits Vesturlands sem byggir á eftirliti þeirra í fyrra eru hins vegar gerðar athugasemdir við frágang á olítanki sem á að standa á steyptu plani sem tengt er við olíugildru. Úrbætur á því þurfi að vera komnar í lag fyrir endurnýjun starfsleyfis, segir eftirlitið. Mynd úr eftirlitsskýrslu Heilbrigðiseftirlits Vesturlands. Þar segir að áfylling á olíutank samræmist ekki kröfum í reglugerð um olíumengun frá starfsemi í landi. Krafa sé gerð um steypt áfylliplan sem tengt er olíugildru.Vísir Enn hafa ekki verið gerðar slíkar úrbætur en Þorsteinn telur samt ólíklegt að það komi í veg fyrir útgáfu starfsleyfis. „Það er nú jafnan þannig að það er ekki allt gert sem heilbrigðiseftirlitið biður um, það þarf stundum að minna á og við vinnum samkvæmt stjórnsýslulögum að þessum úrbótum. Ef úrbæturnar hafa ekki farið fram fær viðkomandi sjálfvirkan tölvupóst úr eftirlitskerfinu okkar þar sem minnt er á að þetta sé komið á tíma og að við óskum eftir upplýsingum,“ segir Þorsteinn. Frestur til úrbóta rennur út 9. júní og Þorsetinn bætir við að fyrirtækið geti síðan farið fram á lengri frest. Vatnstökusvæðið er ógirt og óvarið fyrir ágangi búfjár og manna, segir í eftirlitsskýrslu Heilbrigðiseftirlits Vesturlands.Vísir Í eftirlitsskýrslu eru einnig gerðar athugasemdir við að vatnslónið fyrir neysluvatn starfseminnar sé óvarið. Engan varnir séu til að sporna við því að mengun berist í vatnið og að ganga þurfi betur frá vatnsveitunni. Í eftirlitsskýrslu segir að skoða þurfi möguleikann á að breyta vatnstöku þannig að yfirborðsvatn verði ekki nýtt beint með þessum hætti. Þorsteinn bendir á að vatnið sé síað og geislað fyrir nýtingu og að það dragi úr áhættu. Sýni hafi staðist kröfur og þrátt fyrir frávik frá kröfum í reglugerð ætti það ekki að koma í veg fyrir útgáfu leyfis. „Það er mjög gott að fá allt sem maður biður um en stundum er ekki hægt að fá allt í einu. Við erum alltaf í ákveðinni vegferð í heilbrigðiseftirlitinu að reyna bæta en förum vægustu leiðina fyrst,“ segir Þorsteinn.
Hvalir Dýraheilbrigði Umhverfismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Erlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Erlent Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Fleiri fréttir Sanngirnisbætur, kjaraviðræður og andlát á Litla-Hrauni Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Sækjast eftir frekara gæsluvarðhaldi vegna andlátsins við Kjarnagötu Tjá sig ekkert um gang Hamraborgarrannsóknarinnar Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Sjá meira