Segir Kára vega ómaklega að sér Berghildur Erla Bernharðsdóttir, Samúel Karl Ólason og skrifa 29. nóvember 2020 11:45 Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir. Vísir/Vilhelm Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir tölur dagsins á svipuðum nótum og undanfarið. Sveiflur geti orðið á milli daga og ekki megi draga of sterkar ályktanir af einum degi.
Tíu greindust smitaðir innanlands í gær en þar áður voru þeir 21. Átta af tíu voru í sóttkví þegar þeir greindust smitaðir. „Tölurnar eru allavega ekki að rjúka upp úr öllu valdi. Þetta er enn náttúrlega í gangi og þó það kom hlé einn og einn dag, þá vitum við að þetta er enn í gangi í samfélaginu,“ segir Þórólfur í samtali við fréttastofu. Þórólfur segir að næstu sóttvarnatillögur séu enn í vinnslu. Núverandi aðgerðir gilda til 1. desember. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, sagði frá því í gær að hann teldi að skilaboð sóttvarnayfirvalda fyrir nokkrum vikum hefðu mögulega valdið því að fólk hefði byrjað að slaka of mikið á sóttvörnum. Þórólfur sagði ómaklega að sér vegið, með því að gefa í skyn að sveiflan væri sér að kenna. „Það var ekki alveg það sem ég bjóst við,“ sagði Þórólfur. Hann sagði að margt hefði líklegast áhrif. Ekki bara eitthvað sem einn segir eða segir ekki. „Ég hef alltaf sagt að við þurfum að fara mjög varlega,“ segir Þórólfur. „Við vitum að þessi tilmæli og reglugerðir sem eru í gildi taka enda og það þarf eitthvað nýtt að taka við. Ég hef aldrei sagt að það verði slakað á. Ég hef sagt að það sé allt til skoðunar og auðvitað veit maður ekkert hvernig væntingar fólks eru.“ Sumir vænti þess að allt verði lokað og aðrir að eitthvað verði opnað. Þórólfur segir erfitt að stjórna því. „Við verðum bara að vera heiðarleg í því hvað við erum að gera,“ segir Þórólfur. Hann sagði enn fremur að alls staðar væri verið að spá í hvaða átt faraldurinn stefndi og hvaða aðgerða þyrfti að grípa til eða hvort hægt væri að létta á. Flestir reyni að sigla þennan faraldur þannig að ekki sé gripið til of harðra aðgerða. „Bestu sóttvarnaaðgerðirnar væru að loka alla inni í marga mánuði þar til þetta væri allt saman búið. Ég er ekki viss um að það myndi ganga. Það hljóta allir að sjá að þú nærð ekki samvinnu við fólk með því móti.“ Það þurfi að sigla leið þar á milli, þannig að sem mestur árangur náist án þess að hafa of íþyngjandi reglur. „Það hefur verið leiðarljós hér allan tímann,“ sagði Þórólfur.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Erlent Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Erlent Aukin virkni í gosinu Innlent Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Innlent Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Erlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Þrír handteknir fyrir ógnandi hegðun í þremur aðskildum málum Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Sjá meira