Íslandspóstur íhugar að hætta að bera út bréf Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 6. mars 2021 09:36 Ekki er útilokað að Íslandspóstur breytist hægt og rólega úr bréfsendingafyrirtæki í pakkadreifingarfyrirtæki en sú þróun er þegar hafin. Vísir/Vilhelm Ein leiðin sem hægt væri að fara ef ganga á lengra í hagræðingu hjá Íslandspósti kæmi til greina að hætta að bera bréf inn um hverja lúgu. Þetta segir Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Íslandspóst, í Morgunblaðinu í dag.
Í samtali við blaðið segir Þórhildur að hagræðing fyrirtækisins sé komin að þolmörkum en ef gengið yrði lengra þyrfti að breyta þjónustuskyldunni. Gríðarlegur samdráttur hafi verið á magni bréfa en samdrátturinn minnkaði til að mynda um 37% í janúar. Viðsnúningur var á rekstri Íslandspósts í fyrra sem hagnaðist um 104 milljónir króna samanborið við 511 milljóna króna tap árið 2019. Þannig jókst afkoma félagsins um 615 milljónir króna milli ára en á sama tíma drógust rekstrartekjur saman um 288 milljónir frá 2019 og námu í fyrra 7.457 milljónum króna í fyrra. Þetta kemur fram í ársreikningi Íslandspósts sem kynntur var á aðalfundi félagsins í gær og fjallað var um á Vísi. Haft var eftir Þórhildi í tilkynningu vegna málsins í gær að þrátt fyrir þann góða árangur sem hafi náðst sé félagið ekki komið á lygnan sjó. „Þessar breytingar eru fyrirséðar og hefur mikil vinna farið í að móta og skipuleggja Íslandspóst til framtíðar með þetta í huga. Segja má að fyrirtækið hafi á síðustu árum verið að breytast úr bréfasendingafyrirtæki í pakkadreifingarfyrirtæki,“ segir í tilkynningunni. Uppfært klukkan 12:08: Í yfirlýsingu frá Íslandspósti er áréttað að félagið geti ekki tekið einhliða ákvörðun um að hætta dreifingu á bréfum. „Í viðtalinu var einungis verið að velta upp leiðum sem ríkið gæti farið til að lækka kostnaðargrundvöll á alþjónustu, sem myndi þá einnig leiða til lægri kostnaðar alþjónustuveitanda, í þessu tilfelli Íslandspóst. Allar svona ákvarðanir verða að vera teknar af stjórnvöldum en Íslandspóstur vinnur eftir settum lögum og reglum,“ segir í yfirlýsingunni.
Pósturinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Viðskipti innlent Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Viðskipti innlent Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Hraðhleðslur spretta upp sem gorkúlur - tvær opna á Þórshöfn Samstarf Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Viðskipti innlent Polestar 4 kominn í Polestar Reykjavík – umhverfisvænasti bíll Polestar Samstarf Sekta Árvakur um 1,5 milljónir króna vegna fjölda dulinna auglýsinga Neytendur Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Viðskipti innlent „Í dag fæ ég næstum því bara hrós við matarborðið“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Áhorf á Eurovision hríðfellur Aukið atvinnuleysi Kynning á yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Ráðin aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Kaupa Íslensk verðbréf Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Einar hættir með Grillbúðina Hætta skerðingum til stórnotenda Sjá meira