„Sýnir okkur takta sem eru Zlatanskir“ Valur Páll Eiríksson skrifar 18. júní 2021 16:01 Alexander Isak var valinn maður leiksins í kvöld. UEFA via Getty Images/Gonzalo Arroyo Alexander Isak, framherji sænska landsliðsins, var valinn maður leiksins eftir 1-0 sigur liðsins á Slóvakíu í E-riðli Evrópumótins í dag. Sérfræðingar Stöðvar 2 Sport usu lofi yfir unga framherjann eftir leik. „
Stórkostleg frammistaða hjá Isak og greinilegt að Svíarnir eru í ágætis málum fram á við með hann þarna fyrir restina af mótinu.“ sagði Arnar Sveinn Geirsson um Isak eftir leik. Isak ógnaði ítrekað með hraða sínum, tækni og styrk þar sem hann skapaði flest allt jákvætt fram á við hjá þeim sænsku í leiknum. „Frábært fyrir hann að eiga svona frammistöðu. Munurinn sem ég sé helst í þessu hjá Slóvökunum í seinni hálfleik er að ákefðin virðist detta aðeins niður hjá þeim. Þeir höfðu til dæmis virkilega góðar gætur á Lewandowski allan leikinn á móti Póllandi. Í seinni hálfleik, sér maður í þessum klippum, að hann fær að snúa með hann rétt fyrir utan teig sem að Lewandowski hafði aldrei tækifæri á að gera. Þannig nær hann meðal annars að búa til dauðafæri og vítið líka.“ bætti Arnar Sveinn við. Certified baller Alexander Isak = Star of the Match after another majestic display Did you predict that? @Heineken | #EUROSOTM | #EURO2020 pic.twitter.com/TtB2ash5fH— UEFA EURO 2020 (@EURO2020) June 18, 2021 Ósanngjarnt að bera hann saman við Zlatan Isak fetar í stór fótspor í sænska liðinu en goðsögnin Zlatan Ibrahimovic missir af mótinu vegna meiðsla. Ólafur Kristjánsson segir þó ósanngjarnt, líkt og Zlatan hefur sagt sjálfur, að bera þá tvo saman. „Þessi umræða um að Zlatan sé ekki með og allt það, það væri kannski ekki rétt að setja á drenginn það að þurfa að fylla í hans skó en það sýnir okkur takta sem eru Zlatanskir, við sjáum þessi gæði. Zlatan sjálfur hefur talað um það, þó hann tali um sjálfan sig í þriðju persónu, að það sé ekki rétt að setja það á herðar þessa pilts að líkja honum við Zlatan.“ segir Ólafur. Svíar eru með fjögur stig og markatöluna 1-0 eftir fyrstu tvo leiki sína á mótinu, sá fyrri var 0-0 jafntefli við Spánverja í fyrstu umferðinni. Liðið er langt komið með að tryggja sæti sitt í 16-liða úrslitunum en eftir sigur dagsins er þriðja sæti riðilsins að minnsta kosti tryggt. Spánn og Pólland mætast í E-riðlinum klukkan 19:00 annað kvöld en síðasta umferðin fer fram 23. júní. Þar mæta Svíar þeim pólsku í lokaleik sínum í riðlinum. Helstu spretti Isaks og umræðuna um hann má sjá í spilaranum að neðan. Klippa: EM í dag - Umræða um Alexander Isak
EM 2020 í fótbolta Tengdar fréttir Forsberg tryggði Svíum sigur og mögulegan farseðil í 16-liða úrslit Emil Forsberg skoraði sigurmark Svíþjóðar gegn Slóvakíu í E-riðli Evrópumótsins í knattspyrnu. Lokatölur 1-0 og Svíar svo gott sem komnir áfram í 16-liða úrslit. Markið má sjá í spilaranum neðst í fréttinni. 18. júní 2021 15:00 Mest lesið „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Enski boltinn Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Handbolti Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Körfubolti Fleiri fréttir Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Hákon skoraði en Lille er á leið í umspil Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Albert kom inn af bekknum er Genoa tapaði gegn tíu Rómverjum Valur og Þróttur flugu inn í átta liða úrslit Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð United skemmdi kveðjupartý De Zerbi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Klopp kvaddi með sigri Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Sjá meira
Forsberg tryggði Svíum sigur og mögulegan farseðil í 16-liða úrslit Emil Forsberg skoraði sigurmark Svíþjóðar gegn Slóvakíu í E-riðli Evrópumótsins í knattspyrnu. Lokatölur 1-0 og Svíar svo gott sem komnir áfram í 16-liða úrslit. Markið má sjá í spilaranum neðst í fréttinni. 18. júní 2021 15:00
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Körfubolti
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Körfubolti