Boða byltingu með nýju flugskýli fyrir Gæsluna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. september 2021 15:35 Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra LHG Bygging nýs flugskýlis fyrir Landhelgisgæslu Íslands hefst í vetur. Með nýju flugskýli verður bylting í aðbúnaði flugdeildar Landhelgisgæslunnar. Hið nýja flugskýli verður 2822 fermetrar að stærð og er gert ráð fyrir að það verði tilbúið um mitt ár 2022 að því er segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
Útboð vegna jarðvinnu hefur verið auglýst en það markar upphafið að framkvæmdinni. Reiknað er með að framkvæmdir hefjist strax við töku tilboðs sem gæti orðið um næstu mánaðamót. Framkvæmdatími þessa verkliðs er áætlaður um átta vikur og á þá öllum uppgreftri að vera lokið og jarðvegspúði tilbúin fyrir bygginguna. „Leiga á stærri og öflugri björgunarþyrlum hefur leitt til þess að loftför Landhelgisgæslunnar rúmast ekki lengur í skýlinu og því óhjákvæmilegt að ráðast í umbætur á húsnæðinu. Nýja flugskýlið mun tengjast flugskýlinu sem fyrir er og kemur einnig til með að hýsa skrifstofur flugdeildar, mötuneyti starfsmanna, búningsklefa og hvíldarrými starfsfólks,“ segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Frá blaðamannafundinum á Reykjavíkurflugvelli í dag.LHG Öryggisfjarskipti ehf. munu annast byggingu flugskýlisins. Samkomulag hefur verið undirritað milli Landhelgisgæslu Íslands og Öryggisfjarskipta um leigu Landhelgisgæslunnar á flugskýlinu. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, segir byggingu flugskýlisins vera mikið framfaraskref enda sé núverandi aðstaða flugdeildar stofnunarinnar barn síns tíma. Loftför Landhelgisgæslunnar rúmist ekki lengur í núverandi flugskýli og því sé mikilvægt að starfseminni sé tryggð viðunandi aðstaða. Gamla flugskýlið á Reykjavíkurflugvelli.LHG „Núverandi flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli var byggt af breska flughernum árið 1943 og þjónaði sínu hlutverki vel framan af. En með öflugri björgunartækjum og auknum öryggiskröfum hafa þarfirnar breyst. Með þeirri ákvörðun sem nú hefur verið tekin er flugdeild Landhelgisgæslunnar tryggð viðunandi aðstaða sem uppfyllir kröfur nútímans,“ segir Georg. „Eftir að þriðja leiguþyrlan af gerðinni Airbus Super Puma H225 var tekin í notkun í maí hefur flugfloti Landhelgisgæslunnar aldrei verið öflugri. Þessi öflugi flugfloti og starfsfólki flugdeildar Landhelgisgæslunnar fá nú viðunandi aðstöðu sem uppfyllir þarfir samtímans. Við hjá Landhelgisgæslunni erum afar þakklát stjórnvöldum og Öryggisfjarskiptum ehf. fyrir að láta byggingu flugskýlisins verða að veruleika. Síðast en ekki síst erum við þakklát borgaryfirvöldum í Reykjavík sem hafa sýnt þeirri mikilvægu starfsemi sem fram fer hjá Landhelgisgæslu Íslands mikinn skilning með því heimila byggingu þess. Bygging nýs flugskýlis markar tímamót í sögu flugrekstrar hjá Landhelgisgæslu Íslands.“ Grunnmynd af nýja flugskýlinu.LHG Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Öryggisfjarskipta ehf. segir byggingu flugskýlisins vera liður í áframhaldandi uppbyggingu öryggisinnviða hér á landi. „Öryggisfjarskipti ehf. hafa undanfarin ár unnið að uppbyggingu öryggisinnviða hér á landi. Bygging nýs flugskýlis fyrir starfsemi Landhelgisgæslu Íslands er liður í þeirri uppbyggingu,“ segir Þórhallur.
Landhelgisgæslan Fréttir af flugi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Innlent Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Innlent Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Erlent Fleiri fréttir Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti 300 kröfur um húsleitir og 294 um símahlustun síðustu fimm ár Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Vann fimmtíu milljónir króna „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Sjá meira