Leiðtogafundur um málefni kennara verður í Reykjavík

Mike Thiruman, formaður Kennarasambands Singapúr, Chan Chun Sing menntamálaráðherra Singapúr, …
Mike Thiruman, formaður Kennarasambands Singapúr, Chan Chun Sing menntamálaráðherra Singapúr, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands Ljósmynd/Stjórnarráðið

Ísland hefur verið valið sem næsti fundarstaður ISTP-ráðstefnunnar, sem er einn stærsti vettvangur samtals menntamálayfirvalda og stéttarfélaga kennara í löndum OECD.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Ráðherrar og kennarar deila reynslu og þekkingu

Þetta var tilkynnt við hátíðlega athöfn á nýafstöðnum leiðtogafundi sem fram fór í Singapore í liðinni viku. Þar tók Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, við keflinu úr höndum Chan Chun Sing menntamálaráðherra Singapúr.

ISTP stendur fyrir International Summit of the Teaching Profession og til fundarins koma ráðherrar menntamála og leiðtogar kennarasambanda frá ríkjum sem eiga aðild að OECD.

Í tilkynningu segir að leiðtogafundurinn sé gott tækifæri fyrir ráðherra og leiðtoga kennara til að deila reynslu og þekkingu á hvernig best megi stuðla að gæðamenntun með öfluga kennara við stjórnvölinn.

Mikilvægt að hafa kennara með í för

„Ég er mjög ánægður að Ísland hafi orðið fyrir valinu til að halda þennan mikilvæga viðburð um málefni kennara og gæðamenntun á öllum skólastigum. Leiðtogafundur sem þessi er dýrmætur til að efla samtal þeirra aðildarríkja OECD sem taka þátt í samstarfinu.

Það er margt sem við getum lært af hvert öðru en Ísland getur einnig miðlað því sem vel hefur gengið hér á landi sem styður við farsæld og vellíðan barna og ungmenna og þátttöku þeirra í íþrótta- og tómstundastarfi,“ er haft eftir Ásmundi Einari í tilkynningunni.

Framtíð menntunar, áhrif tækni á skólastarf og starfsþróun voru meginþemu nýafstaðinnar ISTP-ráðstefnu í síðustu viku. Þar ávarpaði Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, fundinn og sagði meðal annars að stjórnvöld þyrftu á öllum tímum að hafa kennara með í för þegar unnið er að stefnumótun í menntamálum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert