Graðhestaskyr á Brúnastöðum: Skyrland opnað á Selfossi Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 21. október 2021 22:01 Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra Framsóknarflokksins og Guðni Ágústsson, fyrrverndi ráðherra flokksins láta vel af nýja Skyrlandinu og sögðu það verða mikla lyftistöng fyrir Selfoss. Þeir mættu báðir við opnunina í kvöld. Magnús Hlynur Hreiðarsson „Við krakkarnir fengum alltaf graðhestaskyr á Brúnastöðum“, sagði Guðni Ágústsson, fyrrverandi mjólkureftirlitsmaður hjá Mjólkurbúi Flóamanna og fyrrverandi ráðherra þegar nýjasta upplifundarsýning, Skyrland, var opnuð á Selfossi í kvöld í Mjólkurbúinu í miðbæ Selfoss.
Á sýningunni reynir á öll skilningarvit gesta , sjón, heyrn, snertingu, ilm og bragð, með frumlegri hönnun fjölbreyttra atriða, sem meðal annars fjalla um upphafskúna Auðhumlu, íslenska sumarið, mjólkurvinnslu kvenna, kynslóð eftir kynslóð, í torfbæi liðinna alda, mjólkurbúin og margt fleira. Skyrið, þessi afurð íslenskrar menningar og náttúru, hefur nú slegið í gegn víða um heim og í Skyrlandi er saga þess rakin. Sýningin hefur verið í undirbúningi í þrjú ár en aðalhönnuður hennar er Snorri Freyr Hilmarsson, leikmynda- og sýningahönnuður. Skyrland er í eigu Skyrheima, félags sem Mjólkursamsalan og Sigtún Þróunarfélag stofnuðu utan um verkefnið. Fjöldi gesta mætti á opnunarhátíðina í kvöld, m.a. Ari Edwald frá MS og Magnús Sigurðsson, bóndi í Birtingaholti í Hrunamannahreppi.Magnús Hlynur Hreiðarsson „Stefna MS er sú að koma því enn betur á framfæri að Ísland er upprunaland skyrsins og þegar þessi hugmynd kom upp, að skapa skyrinu heimili í endurbyggðu fyrsta Mjólkurbúinu á Selfossi, þá vildum við taka þátt í því,“ segir Pálmi Vilhjálmsson, forstjóri MS. Saga Selfoss er nátengd skyrgerð og mjólkuriðnaði á Íslandi. Fljótlega eftir stofnun Mjólkurbús Flóamanna og byggingu gamla mjólkurbúsins 1929 hófst fyrir alvöru iðnaðarframleiðsla ýmissa mjólkurafurða hér á landi og þar á meðal skyrsins. Staðsetning mjólkurbúsins skammt frá Ölfusárbrú dró til sín fjölda starfsmanna sem voru meðal frumbyggja hins nýja bæjar sem stækkaði hratt í kjölfarið. Elísabet Ósk Guðlaugsdóttir er rekstrarstjóri Skyrlands í nýja miðbænum á Selfossi.Magnús Hlynur Hreiðarsson „Með þessari metnaðarfullu og skemmtilegu sýningu hér í hjarta Selfoss verður til nýr áfangastaður fyrir alla þá fjölmörgu ferðamenn, íslenska og erlenda, sem eiga leið um bæinn,“ segir Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Árborgar. „Skyrland er ákveðin undirstaða í þessu fallega matarmenningarhúsi sem Mjólkurbúið er orðið og með því er að rætast gamall draumur heimamanna um sýningu sem heiðrar sögu og hlutverk staðarins.“ Nýja Skyrlandið er með fjölda veitinga til sölu, sem allar tengjast íslenska skyrinu.
Árborg Landbúnaður Menning Söfn Tengdar fréttir „Það verður engin kyngeta nema með að borða skyr“ Mikið var um að vera í nýja miðbænum á Selfossi í dag en þar var fyrsta skyrsafn landsins opnað síðdegis. Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, segir að Selfoss sé orðinn miðdepill Íslands á nýjan leik. 21. október 2021 20:41 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Vilja endurupptöku í máli Weinstein Erlent Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Vill hinn almenna launamann á þing Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Fleiri fréttir Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Sjá meira
„Það verður engin kyngeta nema með að borða skyr“ Mikið var um að vera í nýja miðbænum á Selfossi í dag en þar var fyrsta skyrsafn landsins opnað síðdegis. Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, segir að Selfoss sé orðinn miðdepill Íslands á nýjan leik. 21. október 2021 20:41