fbpx
Föstudagur 17.maí 2024
Fréttir

Ólga meðal Íslendinga vegna meints okurs á ostakössum – „Þetta er bara þjófnaður“

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 30. nóvember 2021 12:00

Myndir: Þórólfur Marel Jónasson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórólfur Marel Jónasson birti á dögunum færslu í Facebook-hópnum vinsæla Matartips sem vakið hefur gífurlega athygli. „Vildi benda fólki á okrið á ostakössunum frá MS sem eru til sölu í Nettó,“ skrifar Þórólfur í færslunni en hann tók sig til og athugaði hvað vörurnar í kassanum myndu kosta samtals ef þær yrðu keyptar í lausasölu.

Við þessa athugun sína komst Þórólfur að því að vörurnar kostuðu samtals 5.485 krónur en ostakassinn með vörunum saman kostaði heilar 9.449 krónur. „Ert að borga 4.014kr fyrir kassann,“ segir hann ósáttur.

Mynd: Þórólfur Marel Jónasson

Þórólfur tekur fram að hann hafi að vísu ekki fundið nákvæmlega sömu bláberjasultu og var í kassanum. „En þessi sem ég setti í þennan útreikning er helmingi stærri,“ segir hann. Fyrir utan bláberjasultuna var hann með nákvæmlega sömu vörurnar og í kassanum.

DV hafði samband við Mjólkursamsöluna og komst að því að ostakassinn sem um ræðir kostar frá þeim 8.000 krónur án virðisaukaskatts. Með virðisaukaskatti er talan nær 9.000 krónunum. Það virðist því ekki vera sem álagningin hjá Nettó sé neitt rosaleg.

Ólga meðal meðlima Matartips

Meðlimir Matartips eru allt annað en ánægðir með þennan mismun og ausa margir úr skálum reiði sinnar í athugasemdunum við færslu Þórólfs. „Ég á bara ekki til orð,“ segir til að mynda kona nokkur í einni athugasemdinni. „Þetta er náttúrlega ekki í lagi,“ segir önnur. „Þetta er bara þjófnaður,“ segir svo enn önnur.

Nokkrir athugulir neytendur segjast í athugasemdum hafa tekið eftir þessum mismun í gjafakössum fyrir löngu síðan og ákveðið eftir það að útbúa svona kassa sjálf. „Ég geri svona körfur alltaf sjálf til að gefa og bæti þá gjarnan við kaffipakka sérvettum og kerti eða rauðvíni,“ segir til dæmis kona nokkur.

Maður nokkur segir þá að mismunur sem þessi einskorðist alls ekki við Mjólkursamsöluna.

„Sem dæmi þá var laxakassi sem var með tvær tegundir af laxi, einhverja sósu og eitthvað dót með því sem ég keypti fyrir 2 árum. Ég borða mikið af reyktum lax og hjó þess vegna strax eftir því hvað þetta væri dýrt fyrir hálft kíló af reyktum laxi og viðbiti. Eftir snöggan hring inn í versluninni var ég búinn að reikna það út í símanum að kassinn væri hátt í 50% dýrari en ef ég tæki sömu vörur úr hillunum stakar. Og eini munurinn var einhver þunnur pappakassi með mjög basic hönnun, og það var betri dagsetning á flestum vörunum sem voru utan kassans.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Tommi ómyrkur í máli: Þetta er fólkið sem sagði nei – Banvænt aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar

Tommi ómyrkur í máli: Þetta er fólkið sem sagði nei – Banvænt aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Sigmundur segir skemmdarverk framið á íslenskri tungu og nefnir fjölmörg dæmi

Sigmundur segir skemmdarverk framið á íslenskri tungu og nefnir fjölmörg dæmi
Fréttir
Í gær

Einar Ágúst sneri við blaðinu eftir símtal frá þekktum handrukkara – „Þitt hjartalag á ekki heima hérna“

Einar Ágúst sneri við blaðinu eftir símtal frá þekktum handrukkara – „Þitt hjartalag á ekki heima hérna“
Fréttir
Í gær

Kynntu nýtt borgarhverfi við Kringluna

Kynntu nýtt borgarhverfi við Kringluna
Fréttir
Í gær

169 einstaklingar sem finnast ekki

169 einstaklingar sem finnast ekki
Fréttir
Í gær

Þetta er fanginn sem var frelsaður – Móðir hans í sjokki

Þetta er fanginn sem var frelsaður – Móðir hans í sjokki