Bann sjálfboðaliðans í Ólafsvík fellt úr gildi Sindri Sverrisson skrifar 13. maí 2022 14:21 Kristján Ríkharðsson hefur verið liðsstjóri hjá Víkingi Ólafsvík og getur nú hjálpað Guðjóni Þórðarsyni þjálfara og leikmönnum eins og hann er vanur. mynd/Raggi Óla Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur fellt úr gildi sex mánaða bannið sem Kristján Ríkharðsson, sjálfboðaliði hjá Víkingi Ólafsvík, hafði verið úrskurðaður í vegna falsaðrar leikskýrslu.
Eins og Vísir fjallaði um í síðustu viku var hinn 67 ára gamli Kristján úrskurðaður í hálfs árs bann af aga- og úrskurðanefnd KSÍ. Hann var gerður ábyrgur fyrir falsaðri leikskýrslu í lokaleik Víkings í Lengjubikarnum í vor, gegn ÍR, þar sem að Kristján var sá sem skrifaði undir skýrsluna fyrir hönd Víkings. Lagagreinin sem aga- og úrskurðarnefnd KSÍ byggði sinn úrskurð á er svohljóðandi: Þjálfari eða forystumaður sem stuðlar að því að nafn eða kennitala er fölsuð á leikskýrslu skal sæta leikbanni eða banni frá stjórnunarstörfum í knattspyrnu í allt að eitt ár. Samkvæmt dómi áfrýjunardómstóls sem birtur var í dag var bannið fellt úr gildi þar sem að af gögnum málsins að dæma hafi Kristján hvorki verið í hlutverki þjálfara né forystumanns hjá Víkingi, enda er hann ekki starfsmaður félagsins en hefur í fjóra áratugi hjálpað því sem sjálfboðaliði. „Ég var bara að græja inni í klefa þegar komið var með leikskýrsluna til mín og ég beðinn um að skrifa undir. Það hef ég oft gert og ég er ekkert að lesa þessa andskotans skýrslu. Ég nenni því ekkert enda þekki ég flesta þessa stráka,“ sagði Kristján við Vísi um það þegar hann skrifaði undir skýrsluna. Á hana vantaði nafn erlends leikmanns sem spilaði gegn ÍR og var hann skráður á skýrsluna sem annar leikmaður. Víkingar, með stuðningi ÍR-inga, áfrýjuðu úrskurði aganefndar og eins og fyrr segir bar áfrýjunin árangur. Víkingar þurfa eftir sem áður að greiða 160.000 króna sekt vegna málsins. Fyrr á árinu var fulltrúi Hauka úrskurðaður í sex mánaða bann vegna sams konar brots. Sá var aftur á móti í stjórn hjá Haukum.
Íslenski boltinn Víkingur Ólafsvík Snæfellsbær Mest lesið Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Handbolti „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Handbolti Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Fótbolti Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Handbolti Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Handbolti Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum Íslenski boltinn Fleiri fréttir FH fékk tvær sektir frá KSÍ Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ „Þú veist alveg svarið við þessu“ Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Keflavík og Aftureldingu spáð sigri í Lengjudeildunum Bara Eiður Smári og Bjargvætturinn höfðu skorað fyrir sextán ára afmælið Sjáðu ungar hetjur bjarga Fram og Stjörnunni Hundfúll og ýtti ungum KR-krökkum frá sér: „Ekki fallegt að sjá“ Valur sýndi Berglindi meiri áhuga en Breiðablik „Við eigum að geta varist föstum leikatriðum“ „Það er mikill efniviður í Fram“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Uppgjör og viðtöl: Fylkir - Stjarnan 0-1 | Stjörnumenn stálu öllum stigunum „Nú verður Edda brjáluð þegar ég hitti hana næst“ Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Fyrstir í sautján ár til að vinna fjóra fyrstu leikina tvö ár í röð Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann Sjá meira