Tyggjóklessuhreinsari Reykvíkingur ársins Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 20. júní 2021 11:35 Guðjón Óskarsson, Reykvíkingur ársins ásamt Degi B. Eggertssyni borgarstjóra. Hinn rúmlega sjötugi Guðjón Óskarsson hefur verið valinn Reykvíkingur ársins. Nafnbótina hlýtur hann fyrir starf sitt við að hreinsa gangstéttir borgarinnar af tyggjóklessum.
Þegar Guðjón missti vinnuna í ferðaþjónustu vegna heimsfaraldursins, efndi hann til tíu vikna átaks sem fól í sér að hreinsa upp tyggjóklessur af götum borgarinnar. Hann segist hafa hreinsað upp yfir 56 þúsund tyggjóklessur. „Ég taldi til dæmis tyggjóklessurnar sem ég hreinsaði upp í Ingólfsstræti á fyrsta degi. Þær voru nærri því átta hundruð bara öðrum megin götunnar,“ segir Guðjón. Guðjón notar vél sem leysir upp tyggjóið við hundrað gráðu hita. „Þetta er hundrað prósent umhverfisvæn aðferð, enda fór ég í átakið vegna þess að mér þótti ástandið vera svolítið svakalegt á sumum stöðum í Miðborginni.“ Hér má sjá Reykvíking ársins 2021 við störf. Guðjón er búinn að fara nokkrar umferðir um Miðborgina og fer til dæmis alltaf reglulega niður Skólavörðustíg. Í hvert skipti eru komnar nýjar tyggjóklessur, en þeim fer þó fækkandi. Hann telur ungu kynslóðina vera orðna meðvitaða um að henda ekki tyggjóklessum á gangstéttir. „Vei tyggjókarlinn“ Í starfinu fær Guðjón hreyfingu og útiveru í nokkra klukkutíma á hverjum degi og segir hann þetta vera auðvelda leið til þess að halda sér í formi. Krakkar í bænum fagna Guðjóni og segir Guðjón þá gjarnan hrópa „Vei, tyggjókarlinn“ þegar þau sjá hann. „Ætlun mín var alltaf að vekja athygli á þessu vandamáli með átakinu. Þetta er sóðaskapur og vont fyrir umhverfið. Ég er umhverfissinni og vona að fólk geri mig atvinnulausan með því að hætta að henda tyggjói á göturnar. Ég hef hins vegar alltaf unnið og ætla ekkert að hætta því á meðan ég get,“ segir hann. Guðjón er ánægður með þann heiður að vera valinn Reykvíkingur ársins 2021. Hann er sá ellefti til þess að hljóta nafnbótina og fékk að opna Elliðarárnar í morgun. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að veiðin hafi verið treg og að Guðjón hafi ekki fengið lax.
Reykjavík Borgarstjórn Góðverk Stangveiði Tengdar fréttir Tætir um bæinn og tínir upp tyggjó Reykvíkingurinn Guðjón Óskarsson sem fer fyrir verkefninu „Tyggjóið Burt“ var í dag styrktur af rafhlaupahjólaleigunni Hopp. 21. júlí 2020 21:44 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Fleiri fréttir Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Sjá meira
Tætir um bæinn og tínir upp tyggjó Reykvíkingurinn Guðjón Óskarsson sem fer fyrir verkefninu „Tyggjóið Burt“ var í dag styrktur af rafhlaupahjólaleigunni Hopp. 21. júlí 2020 21:44