Mismuna Rómafólki í skjóli faraldursins Samúel Karl Ólason skrifar 15. október 2020 11:13 Tvo Rómabörn að leik í þorpi í Búlgaríu. AP/Vadim Ghirda
Heimsfaraldur nýju kórónuveirunnar hefur verið notraður til að áreita Rómafólk víða í Mið- og Austur-Evrópu. Mannréttindasamtök og sérfræðingar óttast að með aukinni dreifingu veirunnar muni mismununin og áreitið aukast einnig. Í ítarlegri umfjöllun AP fréttaveitunnar segir að í Búlgaríu hafi sótthreinsiefni til að mynda verið varpað á samfélög Rómafólks úr flugvélum og þyrlum sem notaðar eru til að bera áburð og skordýraeitur á tún. Tilkynningum um að lögregluþjónar hafi beitt Rómafólk ofbeldi hefur fjölgað og í Slóvakíu hefur herinn verið látinn skima eftir veirunni meðal þessa fólks og hvergi annars staðar. Þessar aðgerðir eru framkvæmdar án þess að tilkynningar hafi borist um umfangsmikla útbreiðslu veirunnar meðal Rómafólks. Aðgerðirnar þykja líkjast þeim sem popúliskir leiðtogar hafa beitt til að herða tök sín í skjóli faraldursins. Rómafólk rekur rætur sínar til ættbálka í norðurhluta Indlands og aldalöng mismunun og ofsóknir hafa gert meðlimi þessa samfélags af einhverjum fátækustu og minnst menntuðu íbúum Evrópu. Rómafólk býr víða í afgirtum hverfum og með takmarkaðan aðgang að rafmagni, rennandi vatni og heilbrigðisþjónustu. Margir eiga erfitt með að finna vinnu og heilt yfir er meðal ævilengd Rómafólks styttri en annarra hópa. Í Moldóvu sakaði borgarstjóri Rómafólk um að dreifa veirunni meðal íbúa borgarinnar og embættismenn í Ivano-Frankivsk í Úkraínu skipuðu lögreglu borgarinnar að vísa öllu Rómafólki á brott. Í Búlgaríu hafa stjórnmálamenn lýst samfélögum Rómafólks sem „smithreiðrum“. Í Slóvakíu er atvik til rannsóknar þar sem lögregluþjónn er sakaður um að hafa barið fimm börn með kylfu og hótað að skjóta þau til bana fyrir að leika sér fyrir utan þorp þeirra. Sögur sem þessar koma ekki eingöngu frá Austur-Evrópu heldur einnig ríkjum eins og Belgíu og Ítalíu. Bæjarstjóri þorps nærri París í Frakklandi varaði íbúa þar við því að láta yfirvöld vita um leið og það sæist til vagnalestar. Var hann þar að vísa til Rómafólks.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Fleiri fréttir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Sjá meira