Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Jón Þór Stefánsson skrifar 30. apríl 2024 08:02 Samkvæmt pólskum héraðssaksóknara voru meiðsli lögreglumannanna minni háttar. Skjáskot/RMF Íslenskum karlmanni er gert að greiða samtals þrettán þúsund pólsk slot, sem jafngildir um 450 þúsund íslenskra króna, vegna árásar gegn tveimur lögreglumönnum í Varsjá í Póllandi.
Árásin átti sér stað á lögreglustöð í borginni síðasta haust, en Íslendingurinn, sem er 36 ára gamall, var vistaður í fangaklefa vegna skemmdarverka. Íslendingurinn var leiddur fyrir dóm vegna málsins. Héraðsdómur í Varsjá dæmdi hann í síðasta mánuði til að greiða níu þúsund slota sekt vegna málsins, þar að auki er honum gert að greiða lögregluþjónunum hvorum um sig tvö þúsund slot. Þetta kemur fram í svari héraðssaksóknara Varsjárborgar við fyrirspurn fréttastofu. Í svarinu segir að niðurstaða héraðsdóms sé endanleg. Íslendingurinn var ákærður fyrir að ráðast að lögreglumönnunum tveimur og valda þeim minni háttar áverkum. Hann var hins vegar ekki ákærður vegna áðurnefndra skemmdarverka. Í pólskum fjölmiðlum var fullyrt að hann hafi valdið skemmdum á lúxusbifreið af gerðinni Bentley með því að berja húdd hennar með fartölvu og sparka í stuðara hennar. Eigandi bílsins var sagður meta tjón sitt á sextíu þúsund pólsk slot. Það gerir tæplega tvær milljónir króna. Í svari héraðssaksóknara kemur þó fram að Íslendingurinn hafi ekki verið sóttur til saka vegna skemmdarverkanna þar sem eigandi bílsins hafi ekki lagt fram kvörtun vegna þeirra. Árásin til á myndbandi Upptaka úr öryggismyndavél kjallara lögreglustöðvarinnar sýnir árás Íslendingsins. Myndbandinu var lekið til fjölmiðla, en af því að dæma áttu lögreglumennirnir miklum í vandræðum með Íslendinginn. Það er ekki fyrr en þeir fá liðsauka sem þeim tekst að yfirbuga manninn. Myndskeiðið má sjá hér að neðan. RMF, pólskur fjölmiðill, hafði eftir talsmanni lögreglunnar í kjölfar árásarinnar að lögreglumennirnir hefðu verið fastir í rútínu og því ekki verið undirbúnir fyrir slagsmál við fanga. Upptakan sýndi fram á að þjálfun lögregluþjónanna væri ábótavant og að upptakan yrði notuð til að þjálfa lögreglu.
Erlend sakamál Pólland Íslendingar erlendis Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Miklar breytingar á fylgi fyrir kappræður Stöðvar 2 í kvöld Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Fleiri fréttir „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Sjá meira