Ísland á rauðan lista Breta Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. september 2020 16:51 Samgönguráðherra Bretlands, Grant Shapps, greindi frá á Twitter síðu sinni. Getty/PA Images
Ísland er komið á rauðan lista breskra stjórnvalda. Frá og með klukkan fjögur að morgni laugardagsins 26. september þurfa ferðamenn frá Íslandi, Danmörku, Slóvakíu og Curacao að fara í fjórtán daga sóttkví. Yfirvöld í Danmörku ráða sömuleiðis Dönum frá því að ferðast til Íslands. Íslandi, Bretlandi, Írlandi og Slóveníu var bætt á lista Dana yfir lönd sem ekki er ráðlagt að ferðast til nema nauðsyn krefji. DR greinir frá. 1000 pund lágmarkssekt Grant Shapps, samgöngumálaráðherra Bretlands, greindi frá aðgerðum Breta á Twitter í dag. Hann vísaði til þess að ný gögn gerðu að verkum að grípa þyrfti til þessara aðgerða. Í tilkynningu á vef bresku ríkisstjórnarinnar kemur fram að rúmlega 900 prósenta aukning hafi verið í fjölda smitaðra hér á landi á viku tímabili. Ráðherrann minnir á að sektir við brotum á sóttkví eru að lágmarki eitt þúsund pund eða sem nemur um 177 þúsund krónum. Also please don't forget that you MUST self-isolate (quarantine) when returning from a non-exempt country, or face fines which start at £1,000. Visit: https://t.co/wQuays1qsN [3/3]— Rt Hon Grant Shapps MP (@grantshapps) September 24, 2020 Nýgengni smita, það er fjöldi nýrra tilfella síðustu 14 daga á hverja 100.000 íbúa, hefur rokið upp síðustu daga hér á landi og er nú um 83. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir tjáði fréttastofu í gær að tölurnar færu víða hækkandi og Ísland myndi líklega lenda á rauðum listum þjóða. Strangari reglur muni því gilda um ferðamenn sem hafa verið hér. „Ég veit að Bretar hafa verið að spá í því og vafalaust einhverjar fleiri þjóðir,“ sagði Þórólfur. Innan við sólarhring síðar er Ísland komið á rauðan lista Breta og Dönum ráðlagt frá heimsóknum hingað.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bretland Danmörk Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Innlent Fleiri fréttir Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Sjá meira