„Umtalsverðar fjárhæðir“ en óljóst hvernig á að skattleggja þær Snorri Másson skrifar 14. janúar 2022 09:26 Guðbjörg Þorsteinsdóttir lögmaður hjá Deloitte Legal. Vísir/Sigurjón Talið er að þúsundir Íslendinga hafi hagnast verulega á rafmyntarviðskiptum á meðan enginn skýr lagarammi er til um skattlagningu í málaflokknum. Lögfræðingur segir tímabært að stjórnvöld bregðist við breyttum tímum.
Árlegur Skattadagur Deloitte var haldinn í gær í samstarfi við Viðskiptaráð og Samtök atvinnulífsins. Á meðal þeirra sem flutti erindi var Guðbjörg Þorsteinsdóttir lögmaður, sem ræddi um ýmsa agnúa sem megi sníða af skattkerfinu. Einn slíkur agnúi er umgjörð rafmynta, þar sem löggjöfin hefur að sögn Guðbjargar dregist aftur úr þróuninni. „Þúsundir Íslendinga eru að fjárfesta í rafmyntum. Þetta eru umtalsverðar fjárhæðir og það eru fjölmargir sem hafa atvinnu af námugreftri. Ríkisskattstjóri hefur gefið út hvert sitt álit er. Þetta eru skattskyldar tekjur og þú getur haft skattskyldan hagnað af þessu. En það eru samt sem áður engin skýr ákvæði um þetta í lögunum,“ segir Guðbjörg í samtali við fréttastofu. Vöxtur rafmyntarinnar hefur verið stopull, fyrst hægur en svo ævintýralegur á allra síðustu árum. Sá sem keypti Bitcoin fyrir 100 Bandaríkjadali árið 2011 ætti í dag Bitcoin að andvirði 4,3 milljóna dala. Það er því ljóst að skýr löggjöf um skattlagningu á slíkum hagnaði gæti haft mikla þýðingu. „Fjármálaráðherra var spurður um þetta 2018 og hann sagði að hann hefði hug á því að skipa starfshóp til að skoða nánari skattlagningu á þessum fyrirbærum. En við höfum ekkert séð í þeim efnum. En nú eru liðin þónokkur ár síðan, þannig að ég held að það sé alveg tímabært,“ segir Guðbjörg. Taka má dæmi: Ef einhver ætti Bitcoin fyrir um 1.000 dali, sem myndi síðan hækka í verði upp í 1.500 dali, þannig að hagnaðurinn næmi 500 dölum, þyrfti hann að telja það fram? „Þú átt að telja hann fram,“ segir Guðbjörg. „Skattayfirvöld hafa gefið út leiðbeiningar í þeim efnum. Og þú átt líka að borga fjármagnstekjuskatt af þeim hagnaði. En engu að síður eru þetta fyrirbæri sem voru eðlilega ekki inni í skattalögunum á sínum tíma þegar þau voru sett fyrir áratugum síðan. Þannig að núna er bara mikilvægt að það sé bara tekið sérstaklega á þessu.“
Rafmyntir Skattar og tollar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira