Þingflokkur Viðreisnar kaus stjórn þingflokks á þingflokksfundi. Hanna Katrín Friðriksson gegnir áfram formennsku en Sigmar Guðmundsson var kjörinn varaformaður þingflokksins.
Hanna Katrín hefur setið á Alþingi frá árinu 2016 og verið þingflokksformaður síðan hún tók sæti. Sigmar var kjörinn á þing núna í september síðastliðnum.