Innlent

Jónsi í Sigur Rós lagði ríkis­skatt­stjóra

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Myndin er tekin á tónleikum Sigur Rósar í Laugardalshöll í nóvember.
Myndin er tekin á tónleikum Sigur Rósar í Laugardalshöll í nóvember. Vísir/Vilhelm

Landsréttur hefur vísað kröfu á hendur Jónsa í Sigur Rós vegna skattamáls hljómsveitarinnar frá héraðsdómi. Ríkisskattstjóri ákvað að falla frá áfrýjun dómsmála á hendur þriggja af fjögurra hljómsveitarmeðlima, sem allir höfðu verið sýknaðir í héraðsdómi. Eftir stóð Jónsi – og endurskoðandi hans.

Tónlistarmennirnir fjórir voru upphaflega grunaðir um stórfelld skattsvik með því að hafa komist hjá því að greiða ríflega 150 milljónir króna. 

Skattsvikamálið hefur velkst um í réttarkerfinu um nokkurt skeið; Landsréttur úrskurðaði árið 2021 að málið skyldi fara fyrir héraðsdóm að nýju, sem svo sýknaði tónlistarmennina, þá Jón Þór Birgisson, Kjartan Sveinsson, Georg Hólm og fyrrverandi meðliminn Orra Pál Dýrason. Ríkisskattstjóri áfrýjaði til Landsréttar en ákvað óvænt að falla frá þremur áfrýjunum af fjórum. Nú liggur fyrir niðurstaða í máli Jónsa.

Tónlistarmennirnir hafa byggt frávísunarkröfu á reglunni um ne bis in idem, það er, að maður þurfi ekki að sæta saksókn eða refsingu oftar en einu sinni fyrir sömu háttsemina. Þeir hafi þegar greitt sekt vegna málsins og væri því um tvöfalda refsingu að ræða.

Landsréttur féllst ekki á þau rök Jónsa strax í upphafi forsendna dómsins, sem kveðinn var upp í dag, enda hafi álagið verið lagt á félag í hans eigu en ekki hann sjálfan. Eftir stæði hvort hann teldist hafa verið sýknaður við meðferð málsins hjá skattyfirvöldum.

Aðildin samofin

Landsréttur taldi að aðild félags Jónsa og hans sjálfs hafi verið svo samofin að við meðferð skattyfirvalda hafi aðildin, á tilteknu tímabili, verið ein og hin sama. Því væri rétt að hann nyti þess vafa sem uppi hefur verið í dómaframkvæmd um túlkun á reglunni um tvöfalda refsingu.

Gunn­ar Þór Ásgeirs­son, endurskoðandi hljómsveitarinnar, krafðist ekki frávísunar en byggði sýknukröfu sína á því að hann hefði réttmætar væntingar um að máli á hendur honum væri lokið, þar sem hann væri ekki tilgreindur sem sökunautur, þegar skattrannsóknarstjóri vísaði málinu til héraðssaksóknara.

Endurskoðandanum var gefið að sök að hafa sleppt því að standa skil á skattframtölum félagsins og þannig komið þeim undan greiðslu tekjuskatts. Ákæran miðaði hins vegar að því að hann hefði verið daglegur stjórnandi félags Jónsa en því hafnaði endurskoðandinn alfarið. Ákæruvaldinu tókst sönnun ekki og þá þótti einnig varhugavert að telja hann hlutdeildarmann í skattsvikabroti. Var Gunnar Þór því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.

Eignir tónlistarmannanna voru um tíma kyrrsettar við rannsókn málsins, en þær námu um 800 milljónum króna. Georg Hólm bassaleikari sveitarinnar tjáði sig um málið fyrir tveimur árum síðan og sagði þá: „Hvað á þessi farsi að halda lengi áfram? Á ég að fara að taka þessu persónulega? Mér þykir þetta orðið skammarlegt.“


Tengdar fréttir

Erfiðir tímar að baki hjá Sigur Rós sem blæs til veislu í kvöld

„Þetta er náttúrulega alltaf svolítið spes. Það er öðruvísi að koma heim til Íslands og spila hér. Það eru aðeins meiri taugar,“ segir Georg Hólm bassaleikari Sigur Rósar en sveitin mun halda stórtónleika í Laugardalshöll í kvöld. Fimm ár eru liðin frá því sveitin spilaði hér á landi.

„Mjög sterk og ákveðin sýkna“

Bjarnfreður Ólafsson, lögmaður Sigur Rósar, segir kærkomið og löngu tímabært að meðlimir hljómsveitarinnar hafi verið sýknaðir fyrir dómstólum af ásökunum um skattalagabrot.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×