Bagalegt ástand á Ísafirði vegna sandfoks Árni Sæberg skrifar 2. júní 2023 16:48 Frá framkvæmdum við Sundahöfn. Þær hafa staðið töluvert lengur yfir en til stóð. Facebook/Ísafjarðarhafnir Mikið sandfok varð á Ísafirði í gær þegar sandur úr sandhaug, sem dælt hafði verið upp úr sundahöfn, fauk. Hafnarstjórinn segir málið bagalegt.
Undanfarin misseri hefur verið unnið að dýpkun Sundahafnar á Ísafirði, í þeim tilgangi að liðka fyrir komum stærri skipa, fullum erlendum ferðamönnum. Tafir á komu dýpkunarskips Björgunar hafa tafið framkvæmdirnar mikið, en þær áttu að hefjast í maí í fyrra. Nú hafa tafirnar valdið óvæntum vandræðum, miklu sandfoki. „Við skulum bara segja að sökum tafa við á framkvæmd þá er þessi sandhaugur þarna sem á eftir að slétta úr og sá í. Þetta átti að vera löngubúið, þetta átti að klárast í vetur. Þannig að það átti að sá í þetta með vorinu og þá hefðum við ekki verið í þessum sporum í dag. Segir Hilmar Kristjánsson Lyngmo, hafnarstjóri hafna Ísafjarðarbæjar. Bærinn slapp Hann segir að blessunarlega hafi verið sunnanátt í gær og sandurinn því fokið norður eftir hafnarsvæðinu, en ekki yfir bæinn. Þá hafi engar skemmdir orðið á hafnarsvæðinu. „Ekki sem ég hef heyrt af. Þetta er það fínt efni sem er að fjúka, þetta er eiginlega bara leir. Það er náttúrulega óþægilegt að fá þetta í augun og svoleiðis en ég held að þetta sé ekki sandur sem er að skemma lakk og slíkt,“ segir hann. Hilmar segir málið bagalegt og að unnið sé að því að finna lausn til þess að koma í veg fyrir að það endurtaki sig. „Til að úða yfir þennan sandhaug, til að reyna að hemja þetta, erum við svona að þreifa fyrir okkur með fyrirtæki í Reykjavík, reyna að fá úðastúta og græjur, sem við getum sett þarna til að hemja þetta.“
Hafnarmál Ísafjarðarbær Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Innlent Eldgosinu lokið eftir 54 daga Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Innlent „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Sjá meira