City með mikilvægan sigur á Arsenal

Raheem Sterling fagnar sigurmarki sínu í leiknum.
Raheem Sterling fagnar sigurmarki sínu í leiknum. getty/ Martin Rickett

Manchester City vann góðan 1-0 sigur á Arsenal í dag. Pep Guardiola hjá Manchester City sigraði þar með sinn gamla lærisvein Mikel Arteta, stjóra Arsenal.

Eina mark leiksins skoraði Raheem Sterling á 23. mínútu þegar hann fylgdi á eftir skoti Phil Foden sem Bernd Leno varði. City stjórnaði leiknum og var meira með boltann en Arsenal fékk þó nóg af marktækifærum til að skora.

Sigurinn var afar mikilvægur fyrir City eftir hæga byrjun á tímabilinu en liðið hafði ekki unnið síðan í fyrstu umferð. Man City er nú í 10. sæti með sjö stig eftir fjóra leiki á meðan Arsenal er í 5. sæti með níu stig eftir fimm leiki.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira