Jarðskjálfti upp á 3,6 við Grindavík

Skjálftinn varð um 3,6 km NNA af Grindavík.
Skjálftinn varð um 3,6 km NNA af Grindavík. mbl.is/Kristinn Magnússon

Jarðskjálfti upp á 3,6 stig reið yfir rétt norðan við Grindavík á tólfta tímanum. Upptökin voru 3,6 km norðnorðvestur af bænum.

Fimm aðrir skjálftar, 1,4 eða minni að stærð, hafa fylgt í kjölfarið.

Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að fáeinar tilkynningar hafi borist vegna skjálftans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert