Óttast allsherjarverkfall: „Þau vilja ekkert tala um þetta“ Sunna Sæmundsdóttir skrifar 26. maí 2023 13:08 Starfsfólk í sundlaugum og íþróttamiðstöðvum víða á landsbyggðinni leggur niður störf á morgun. Trúnaðarmaður óttast allsherjarverkfall í sumar. Vísir/Tryggvi Sundlaugum og íþróttahúsum á landsbyggðinni verður lokað um helgina vegna verkfalls BSRB og leikskólum skellt aftur í lás eftir helgi. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir alvarlega stöðu að teiknast upp og sýnir ósætti félagsmanna skilning. Trúnaðarmaður telur stefna í ótímabundið verkfall miðað við skilningsleysi viðsemjanda.
Áframhaldandi stígandi er í verkfallsaðgerðum BSRB og á morgun leggur starfsfólk í sundlaugum og íþróttahúsum í átta sveitarfélögum á landsbyggðinni niður störf. Víða verður því lokað í sundlaugum fram yfir helgi. Meðal annars á Akureyri og segir Brynja Rún Guðmundsdóttir, trúnaðarmaður starfsmanna sundlauga í bænum, að fólk sé dapurt yfir því að þurfa að taka slaginn. Starfsfólki mismunað „Það er verið að mismuna starfsfólki sem er að vinna saman. Við erum búin að sjá nú þegar að starfsfólk í sundlaugum, sem er að vinna hlið við hlið, í sama starfi er með mismunandi laun,“ segir Brynja. BSRB hefur krafist afturvirkni frá síðustu áramótum, eða að félagsmenn fái eingreiðslu, til að tryggja sambærilegar launahækkanir og félagsmenn annarra stéttarfélaga hafa fengið. Samninganefnd Sambands íslensksra sveitarfélaga hefur ekki fallist á það og Brynju sárnar skilningsleysið á stöðunni. „Líka bara hjá sveitarfélaginu og fólki í bæjarráðinu. Þau vilja ekkert tala um þetta og skjóta niður umræðuna og segja að þetta tengist þeim ekkert.“ Brynja reiknar ekki með öðru en allsherjarverkfalli, sem hefst að óbreyttu 5. júní. „Við erum að fara í verkfall á morgun og það eru engar umræður um að það verði samið.“ Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir engan fund hafa verið boðaðan. Enn er langt á milli aðila.Vísir/Arnar Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir í samtali við fréttastofu að enn sé langt á milli aðila. Óformleg samtöl eiga sér stað en ekki hefur verið boðað til fundar. Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkissáttasemjara verður það gert um leið og ástæða er talin til. Fjöldi foreldra var heima með leikskólabörn í síðustu viku þar sem leikskólar voru víða lokaðir og verkfallsaðgerðum þar verður haldið áfram á þriðjudag. Meðal annnars í Mosfellsbæ og segir Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri, stöðuna alvarlega. Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar. „Við höfum í raun og veru miklar áhyggjur af því við vitum að þetta kemur sér mjög illa fyrir foreldra og börn. Hér þurfum við sem sagt að loka þremur leikskólum og svo er skert þjónusta á fimm öðrum leikskólum í næstu viku.“ Regína vonar að lausn finnist í deilunni sem allra fyrst. Geturðu tekið undir kröfur BSRB að einhverju leyti? „Ég skil mjög vel að það þurfi að launa vel þessi störf. Þarna er um að ræða lægst launaða hópinn hjá okkur. En ég treysti líka samninganefndinni sem er að vinna þetta fyrir sveitarfélögin og verð eiginlega að vísa á þau í þessu samhengi,“ segir Regína.
Vinnumarkaður Mosfellsbær Akureyri Stéttarfélög Kjaraviðræður 2022-23 Sundlaugar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Innlent Átta forsetaefni klár með listana Innlent Straumhvörf í veðrinu Innlent Eiga von á öðru eldgosi Innlent Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Innlent Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Innlent Ísraelar gera árás á Íran Erlent Baldur segir lygasögur ekki hafa nein áhrif á þá Felix Innlent Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Fleiri fréttir Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Bandarísk þota í vandræðum lenti í Keflavík Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Framkvæmdastjórinn sagður hafa greitt sjálfum sér án heimildar Yfirvofandi eldgos, örvæntingarfull móðir og Hamraborgarþjófarnir Eiga von á öðru eldgosi Maður með kókaín í niðursuðudósum fær mildari dóm Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Öllum dómurum skipt út í milljarðamáli fyrrverandi ráðherra Skoðar róttækar breytingar á vaxtabótakerfinu Baldur segir lygasögur ekki hafa nein áhrif á þá Felix Ráðnar aðstoðarmenn nýrrar ríkisstjórnar Átta forsetaefni klár með listana Þórhildur og Heiða María hlutu Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs Taska stútfull af milljónum króna enn ófundin Ófundin peningataska, aukin spenna í Mið-Austurlöndum og breyting á vaxtabótum Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Guðmundur H. Garðarsson fallinn frá Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Kallað út vegna eldamennsku við Stuðlaháls Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Straumhvörf í veðrinu Náttúran helsta ástæðan fyrir ferðalögum til Íslands Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Sjá meira