Áhyggjufullur vegna stöðu Covid-19 í Rússlandi Samúel Karl Ólason skrifar 18. nóvember 2020 17:58 Vladimír Pútín, forseti Rússlands. EPA/Alexei Nikolsky/Sputnik
Vladímír Pútín, forseti Rússlands, lýsti í dag yfir áhyggjum sínum vegna hækkandi dánartíðni þeirra sem smitast hafa af Covid-19 í Rússlandi. Smituðum hefur farið hratt fjölgandi í Rússlandi á undanförnum mánuðum, eins og víða annars staðar. Þar hefur þó ekki verið gripið til strangra sóttvarna, eins og víða í Evrópu. Pútín sótti ríkisstjórnarfjarfund í dag og í kjölfarið fundaði hann með héraðsstjórum Rússlands. Varaði hann þá við því að reyna að fegra stöðuna í opinberum skýrslum og ítrekaði að þeir hefðu umfangsmiklar valdheimildir til að sporna gegn dreifingu nýju kóprónuveirunnar, sem veldur Covid-19. Áðurnefndur ríkisstjórnarfundur var sýndur í sjónvarpinu og samkvæmt frétt AFP fréttaveitunnar sagði Pútín að ljóst væri að smituðum færi fjölgandi og að dánartíðnin væri sömuleiðis að hækka. 456 manns höfðu dáið á milli daga. Alls hafa rétt tæplega tvær milljónir manna smitast af Covid-19 í Rússlandi, svo vitað sé, og 34.387 hafa dáið. Það er mun minni fjöldi en í ríkjum þar sem sambærilegur fjöldi fólks hefur smitast og voru yfirvöld Rússlands sökuð fyrr á árinu um að draga úr fjölda látinna. Mun fleiri dáið á þessu ári Opinberar tölur sem birtar voru fyrr í þessum mánuði gefa í skyn að tæplega 120 þúsund fleiri hafi dáið á milli mars og september á þessu ári, borið saman við sama tímabil í fyrra. Þykir það til marks um að mun fleiri hafi mögulega dáið en opinberar tölur segja til um. Pútín hafði einnig orð á því að í Moskvu, þar sem flest smit hafa greinst, séu heilbrigðisstarfsmenn betur í stakk búnir til að takast á við faraldurinn. Fregnir hafi borist af skorti á lyfjum og löngum biðtíma eftir sjúkrabílum í öðrum héruðum Rússlands. Þá sagði Pútín að héraðsstjórar ættu ekki að reyna að fegra stöðuna í opinberum skýrslum. Rússar hefðu gengið í gegnum álíka ástand í vor og vissu hvað þyrfti að gera. Þar að auki væru bóluefni á leiðinni. Rússar skráðu fyrsta bóluefnið gegn Covid-19 í sumar. Það heitir Sputnik V en þegar það var skráð hafði það ekki verið rannsakað ítarlega. Sagt veita 92 prósent vörn Sputnik V er sagt veita 92 prósent vörn gegn Covid-19 en það eru bráðabirgðaniðurstöður úr umfangmsmiklum rannsóknum. Samkvæmt nýlegri frétt Al Jazeera hefur bóluefnið verið prófað á 16 þúsund manns. Auk þeirra hafa um tíu þúsund manns í áhættuhópum verið bólusettir. Sputnik, fréttamiðillinn rússneski sem er í eigu ríkisins, segir að um 40 þúsund manns taki þátt í tilraununum og þær muni standa yfir næstu sex mánuði. Aðstoðarborgarstjóri Moskvu sagði nýverið að mögulega myndi almenn bólusetning hefjast í næsta mánuði. Samkvæmt áætlunum, sem Al Jazeera vitnar í, á að framleiða 800 þúsund skammta í þessum mánuði og eina og hálfa milljón í þeim næsta. Uppfært: Upplýsingum um bóluefnið Sputnik V hefur verið bætt við fréttina.
Rússland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Saka Rússa og Kóreumenn um að reyna að stela gögnum um bóluefni Tölvuþrjótar á vegum yfirvalda í Rússlandi og Norður-Kóreu hafa reynt að stela mikilvægum gögnum frá lyfjafyrirtækjum og öðrum sem koma að mikilvægri þróun bóluefna. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Microsoft þar sem fram kemur að flestar árásirnar hafi ekki heppnast. 13. nóvember 2020 15:40 Hafna fréttum um að Pútín ætli að hætta Dmítrí Peskov, upplýsingafulltrúi Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta, hafnaði í dag frétt breska götublaðsins The Sun um að forsetinn þaulsetni ætlaði sér að láta af störfum eftir áramót af heilsufarsástæðum. 6. nóvember 2020 12:00 Grímuskylda í Rússlandi og læknaverkfall á Spáni Spænskir læknar lögðu niður störf í dag vegna slæmra aðstæða og grímuskylda var tekin upp í Rússlandi. 27. október 2020 16:38 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Útimarkaðurinn í Mosó hættir Innlent Fleiri fréttir Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Sjá meira
Saka Rússa og Kóreumenn um að reyna að stela gögnum um bóluefni Tölvuþrjótar á vegum yfirvalda í Rússlandi og Norður-Kóreu hafa reynt að stela mikilvægum gögnum frá lyfjafyrirtækjum og öðrum sem koma að mikilvægri þróun bóluefna. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Microsoft þar sem fram kemur að flestar árásirnar hafi ekki heppnast. 13. nóvember 2020 15:40
Hafna fréttum um að Pútín ætli að hætta Dmítrí Peskov, upplýsingafulltrúi Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta, hafnaði í dag frétt breska götublaðsins The Sun um að forsetinn þaulsetni ætlaði sér að láta af störfum eftir áramót af heilsufarsástæðum. 6. nóvember 2020 12:00
Grímuskylda í Rússlandi og læknaverkfall á Spáni Spænskir læknar lögðu niður störf í dag vegna slæmra aðstæða og grímuskylda var tekin upp í Rússlandi. 27. október 2020 16:38