Níundi bekkur Hagaskóla verður í Háskólabíói fram að jólum Fanndís Birna Logadóttir skrifar 30. nóvember 2021 17:11 Aðeins einn árgangur er eftir í byggingu Hagaskóla. Vísir/Vilhelm Skólastjóri Hagaskóla segir stöðuna í skólanum sérstaka um þessar mundir. Aðeins einn árgangur er eftir í húsnæði skólans þar sem mygla hefur fundist í álmum áttunda og níunda bekkjar. Þá er einnig mögulegt að mygla leynist í álmu tíunda bekkjar. Unnið er að endurbótum en ómögulegt er að segja hversu langan tíma það muni taka.
Í gærkvöldi kom í ljós að mygla væri til staðar í hluta Hagaskóla sem hýsir níunda bekk og féll kennsla árgangsins því niður í dag. Strax og málið kom upp var leitað að nýjum stað fyrir bekkinn en kennsla mun hefjast strax á morgun í Hagaskóla. Verður bekkurinn þar fram að jólum. Fyrr í mánuðinum fannst mygla í álmu áttunda bekkjar og fer kennsla þeirra nú fram á Hótel Sögu. Ingibjörg Jósefsdóttir, skólastjóri Hagaskóla segir líðan nemenda góða þrátt fyrir allt. „Auðvitað er svolítið sérstakt að vera í Hagaskóla akkúrat í dag, það er einn árgangur úti á Hótel Sögu og það er einn árgangur heima í dag,“ segir Ingibjörg. „Hér eru rúmlega 600 nemendur í húsi að öllu jöfnu en aðeins 200 í dag, þannig það er ólíkt því sem er að öllu jöfnu.“ Eftir að mygla kom upp í álmu áttunda bekkjar var allt húsnæðið tekið til skoðunar. Við það kom einnig í ljós að rakaskemmdir hafi fundist í álmu tíunda bekkjar og segir Ingibjörg ekki útilokað að mygla leynist einnig þar. Verkfræðistofan Efla vinnur nú að frekari greiningu á niðurstöðum og endanlegri ástandsskýrslu. Að sögn Ingibjargar er ómögulegt að segja hversu langan tíma endurbætur muni taka og hversu langt þurfi að ganga. „Þetta er bara svo nýskeð að það þarf bara aðeins lengri tíma til að átta sig á því. Niðurstöður um níunda bekkinn komu bara í ljós í gær. Þannig það er verið að bregðast strax við og síðan verður farið í að finna einhverja lausn til lengri tíma, ef þess þarf,“ segir Ingibjörg.
Mygla Reykjavík Skóla - og menntamál Grunnskólar Tengdar fréttir Tvö hundruð Hagskælingar nema á Hótel Sögu Reykjavíkurborg hefur samið við eigendur Hótel Sögu um að leigja af þeim um 1100 fermetra á 2. hæð hótelsins auk aðgangs að sameign. Þar munu um tvö hundruð nemendur í 8. bekk Hagaskóla nema á meðan framkvæmdir fara fram í norðausturálmu skólans hvar myglu hefur orðið vart. 22. nóvember 2021 08:12 Undirbúa flutning og framkvæmdir vegna myglu í Hagaskóla Undirbúningur flutnings og framkvæmda vegna myglu í Hagaskóla er hafinn hjá skólastjórnendum. Nemendur í áttunda bekk skólans verða fluttir í tímabundið húsnæði á meðan unnið verður að endurbætum í norðausturálmu skólans. 18. nóvember 2021 17:36 Borgin setur 25 til 30 milljarða í viðhald og viðgerðir á skólahúsnæði Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í dag að stórauka fjárframlög til viðhalds og viðgerða á skólahúsnæði í borginni. Stendur til að verja 25 til 30 milljörðum til málaflokksins sem er áætluð fjárþörf átaksins á næstu fimm til sjö árum. 4. nóvember 2021 13:22 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Fleiri fréttir Þurftu að réttlæta allt sem þær gerðu í Konukoti Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Sjá meira
Tvö hundruð Hagskælingar nema á Hótel Sögu Reykjavíkurborg hefur samið við eigendur Hótel Sögu um að leigja af þeim um 1100 fermetra á 2. hæð hótelsins auk aðgangs að sameign. Þar munu um tvö hundruð nemendur í 8. bekk Hagaskóla nema á meðan framkvæmdir fara fram í norðausturálmu skólans hvar myglu hefur orðið vart. 22. nóvember 2021 08:12
Undirbúa flutning og framkvæmdir vegna myglu í Hagaskóla Undirbúningur flutnings og framkvæmda vegna myglu í Hagaskóla er hafinn hjá skólastjórnendum. Nemendur í áttunda bekk skólans verða fluttir í tímabundið húsnæði á meðan unnið verður að endurbætum í norðausturálmu skólans. 18. nóvember 2021 17:36
Borgin setur 25 til 30 milljarða í viðhald og viðgerðir á skólahúsnæði Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í dag að stórauka fjárframlög til viðhalds og viðgerða á skólahúsnæði í borginni. Stendur til að verja 25 til 30 milljörðum til málaflokksins sem er áætluð fjárþörf átaksins á næstu fimm til sjö árum. 4. nóvember 2021 13:22