Svali mættur aftur til Tenerife: „Sjaldan fengið eins góða þjónustu og núna“ Stefán Árni Pálsson skrifar 30. október 2020 11:30 Svali er mættur til Tenerife.
Sigvaldi Kaldalóns eða Svali eins og hann er oftast þekktur sem er mættur aftur til Tenerife þar sem hann hefur búið í nokkur ár. Svali hefur verið farastjóri á eyjunni og gekk það vel fram að heimsfaraldri. Svali reif alla fjölskylduna út á sínum tíma en þau urðu að flytja aftur heim í vor vegna útbreiðslu kórónuveirunnar sem veldur Covid-19 sjúkdóminum. „Ég er alsæll í sólinni. Ekki ský á lofti og 24 gráður hér að morgni,“ segir Svali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. „Ein af ástæðunum fyrir því að Tenerife datt út sem ferðamannastaður er þessi sóttkví sem allir þurfa að fara í. Nú voru bæði Bretar, Þjóðverjar og Hollendingar að gefa út að ef fólk fer til Kanaríeyja þá þarf það ekki í sóttkví þegar það kemur heim af því að eyjarnar eru með svo lágt smithlutfall. Hér er það um 22 á hverja hundrað og þar af leiðandi ekki hættusvæði,“ segir Svali en ferðamenn sem mæta til Tenerife þurfa að fara í skimun eftir 5. nóvember. „Núna vilja þeir að Bretar sýni fram á það að þeir séu ósmitaðir þegar þeir koma en það á ekki við um Íslendinga,“ segir Svali og bætir við að það hafi ekki verið svo mikið mál að koma sér yfir til Tenerife frá Íslandi. „Þú getur flogið yfir til Bretlands frá Íslandi með nokkrum flugfélögum. Ég fór til að mynda með Easy Jet yfir til Manchester og beið þar í fjóra tíma og þaðan áfram suður eftir,“ segir Svali en fyrir flugtak varð hann að fylla út rafrænt eyðublað til að sýna fram að á að hann sé heilsuhraustur og gefa upp allar upplýsingar svo hægt sé að fylgjast með ferðum hans. Hann segir að á Tenerife sé ekkert útgöngubann. „Allar Kanaríeyjarnar eru undanskildar útgöngubanni sem er á Spáni núna og það er ákveðin yfirlýst stefna að þeir ætli að reyna halda því þannig á Kanaríeyjunum eins og hægt er. Það er erfitt að segja hvað verður. Það er allt opið hér en sumir eru með lokað því það er ekki það mikill fjöldi hérna. En þú getur farið í bæinn og farið á veitingastaði og svona. Vorum einmitt að tala um það í gær að maður hefur sjaldan fengið eins góða þjónustu og núna.“ Hér að neðan má hlusta á spjallið.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Spánn Bítið Íslendingar erlendis Mest lesið Myndaveisla: Ekkert gefið eftir í forsetafögnuði ísdrottningarinnar Lífið Forðast drama eins og heitan eldinn Lífið Elín Metta og Sigurður eiga von á barni Lífið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Fyrsti takóstaðurinn sem fær Michelin-stjörnu Matur Steldu stílnum af konunum í forsetaframboði Tíska og hönnun Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Lífið Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Lífið „Blessunarlega ekkert stoppaður af foreldrum mínum“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir Elín Metta og Sigurður eiga von á barni Forðast drama eins og heitan eldinn Myndaveisla: Ekkert gefið eftir í forsetafögnuði ísdrottningarinnar „Þetta voru flottustu tónleikar sem haldnir hafa verið á Íslandi“ Krakkatían: Frambjóðendur, rapparar og ofurhetjur Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Öll með aðstöðu til að fagna sigri með stuðningsmönnum Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Andri og Erla selja í Seljunum „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Hafa ekki sést saman í sjö vikur Elísabet og Áki nefndu stúlkuna Fantaflott með frönskum gluggum í Vesturbænum Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Segir sjálfsvígin sárust Elín Hall í rándýrum kjól á rauða dreglinum Bein útsending frá svartþrastahreiðri í Hvalfjarðarsveit Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Horfir vonandi niður af himnum og sér börnin blómstra á bóndabænum Smekklegt einbýli í Fossvogi á 230 milljónir Af vængjum fram: „Krakkar, ekki gera þetta heima“ Þórdís Björk og Júlí Heiðar eignuðust hárprúða stúlku Föruneyti Pingsins: Enn barist í Baldurs Gate Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Óvænt að „gáfumannarapparar“ herji stríð af þessu tagi Sjá meira