Þrír karlar og ein kona ákærð í Rauðagerðismálinu Birgir Olgeirsson og Nadine Guðrún Yaghi skrifa 11. maí 2021 15:57 Frá rannsókn lögreglu við Rauðagerði sunnudaginn 14. febrúar. Vísir/Vésteinn Þrír karlar og ein kona hafa verið ákærð í Rauðagerðismálinu. Þetta herma heimildir fréttastofu en fjórmenningarnir eru allir ákærðir fyrir 221. grein almennra hegningarlaga sem fjallar um manndráp og á það að hafa verið unnið í samverknaði.
Angjelin Sterkaj, frá Albaníu, er einn hinna ákærðu. Hann hefur játað að hafa myrt Armando Beqirai við heimili Armando í Rauðagerði rétt fyrir miðnætti laugardagskvöldið 13. febrúar. Var Armando skotinn níu sinnum með 22 kalíbera skammbyssu sem búin var hljóðdeyfi. Kærasta Angjelin, sem er frá Portúgal, er einnig ákærð en eins og kom fram í Kompás í síðustu viku er hún grunuð um að hafa elt Armando kvöldið örlagaríka. Tveir karlmenn til viðbótar, báðir frá Albaníu, eru einnig ákærðir vegna málsins. Annar þeirra var vinur þess myrta en hinn Albaninn var í bíl með Angjelin kvöldið sem Armando var myrtur. Málið var sent til héraðssaksóknara þann 3. maí síðastliðinn og höfðu þá 14 manns stöðu sakbornings. Ekki er ljóst hvað héraðssaksóknari hyggst hafast að hvað tíu af þeim fjórtán varðar. Einn þeirra tíu er rúmlega fertugur Íslendingur sem var í gæsluvarðhaldi um tíma vegna rannsóknar málsins. Var hann grunaður á sínum tíma um að vera upplýsingagjafi lögreglu samhliða því að vera stórtækur í fíkniefnaheiminum. Gögnum þess efnis var lekið í upphafi árs. Fjallað var um málið í fréttaskýringaþættinum Kompás í síðustu viku. Þóranna Helga Gunnarsdóttir, ekkja Armando Beqirai, gagnrýndi þar lögreglu fyrir að hafa haft upplýsingar um að sá sem gengist hefur við morðinu hafi verið vopnaður skammbyssu þremur vikum áður og verið á Íslandi þrátt fyrir að vera eftirlýstur í heimalandinu. Hér má sjá viðtalið við Þórönnu: Fljótlega eftir morðið bárust fréttir af því að það tengdist mögulega skipulagðri glæpastarfsemi sem leiddi til einnar umfangsmestu rannsóknar sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ráðist í. Hér fyrir neðan má sjá umfjöllun Kompáss um skipulagða glæpastarfsemi á Íslandi:
Kompás Morð í Rauðagerði Lögreglumál Tengdar fréttir Óttast að lenda undir gegn þaulskipulögðum glæpahópum Aukin harka, þaulskipulögð tryggingasvik og tugmilljarða fíkniefnaviðskipti einkenna nú undirheima Íslands. 3. maí 2021 08:01 „Þetta var bara aftaka“ Þóranna Helga Gunnarsdóttir, ekkja Armando Beqirai, telur yfirvöld hafa brugðist. Hún er gagnrýnin á að lögregla hafi haft upplýsingar um að sá sem gengist hefur við morðinu hafi verið vopnaður skammbyssu þremur vikum áður og verið á Íslandi þrátt fyrir að vera eftirlýstur í heimalandi. 4. maí 2021 08:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Fleiri fréttir Sofa rótt í Grindavík og halda í vonina Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Sjá meira
Óttast að lenda undir gegn þaulskipulögðum glæpahópum Aukin harka, þaulskipulögð tryggingasvik og tugmilljarða fíkniefnaviðskipti einkenna nú undirheima Íslands. 3. maí 2021 08:01
„Þetta var bara aftaka“ Þóranna Helga Gunnarsdóttir, ekkja Armando Beqirai, telur yfirvöld hafa brugðist. Hún er gagnrýnin á að lögregla hafi haft upplýsingar um að sá sem gengist hefur við morðinu hafi verið vopnaður skammbyssu þremur vikum áður og verið á Íslandi þrátt fyrir að vera eftirlýstur í heimalandi. 4. maí 2021 08:00