Ómar var vissulega langt frá sínu besta í 27-27 jafnteflinu við Serbíu í gærkvöld og hefur fengið sinn skerf af gagnrýni fyrir. Hann segir að stundum sé líka mikilvægt að „gleyma“ enda er örstutt í næsta leik, við Svartfjallaland á morgun klukkan 17.
„Þetta var svolítið skrýtið, og erfiður gærdagur, sérstaklega þar sem við vorum alls ekki nógu beittir. En gríðarlega gott að ná í stigið,“ segir Ómar en leikmenn landsliðsins ræddu við fjölmiðla fyrir æfingu í München í dag. Um hvað hugsaði hann á koddanum í gærkvöld?
„Bara um allt sem maður hefði getað gert betur, og liðið getað gert betur. Hvað maður hefði getað gert öðruvísi og allt það, svona eins og venjulega þegar ekki gengur vel,“ segir Ómar, ósáttur við sína frammistöðu en hann var þó bara einn af fleirum sem náðu sér engan veginn á strik í sóknarleiknum.
Munum gera töluvert betur sóknarlega
„Ég veit ekki af hverju þetta gerðist en við erum búnir að kíkja á þetta og sjá hvað við hefðum getað gert betur. Við náum vonandi að framkvæma betur í næsta leik. Þetta er einn leikur – ef þetta verður stabílt svona þá er það klárlega áhyggjuefni – en ég held að við munum mæta klárir í næsta leik og gera töluvert betur sóknarlega. Mér fannst vörnin vera nokkuð traust allan tímann, þó að það séu nokkur atriði þar sem við getum lagað líka. En þetta var aðallega sóknin. En maður þarf að vera fljótur að gleyma líka,“ segir Ómar en viðtalið við hann má sjá hér að neðan.
„Fullæstir á köflum“
„Þetta var fyrsti leikur og svona. Við vorum fullæstir á köflum. Kannski að hugsa of mikið sóknarlega, eða eitthvað þannig. Náðum bara ekki að spila basic handbolta nógu vel. Ákvörðunartakan var stundum sérstök og ekki það sem við erum vanir að gera. Vonandi var þetta bara einhver skrekkur í fyrsta leik og við getum komist í góðan takt,“ bætir hann við. Ómari var að sjálfsögðu létt að Ísland skyldi vinna upp þriggja marka forskot á síðustu hundrað sekúndum leiksins:
„Þetta var bara rosalegt. Ég hálftrúði þessu ekki. Þetta sýnir ákveðin gæði, að geta búið til eitthvað svona úr engu, í vonlausri stöðu. Það er mjög sterkt.“
Svartfellingar nýti sömu aðferðir og Serbar
Næst á dagskrá er leikurinn við Svartfellinga sem voru afar nálægt því að taka stig af Ungverjum í gærkvöld.
„Þeir eru með flotta leikmenn líka. Þeir munu líka skoða leik okkar við Serba og sjá hvað þeir gerðu vel. Ég reikna með að þeir spili svipaðan varnarleik og Serbarnir, og við þurfum að vera klárir í hörkuslag,“ segir Ómar.