Guardiola: Ég hendi þeim út úr liðinu sem halda að við séum búnir að vinna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2021 15:30 Pep Guardiola ætlar að halda sínum mönnum í Manchester City á tánum. Getty/Matt McNulty Manchester City er að stinga af í ensku úrvalsdeildinni en knattspyrnustjórinn Pep Guardiola hefur varað sína menn við því að slaka eitthvað á.
Manchester City vann sinn tuttugasta leik í röð í öllum keppnum um helgina og er nú komið með tólf stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar þegar tólf leikir eru eftir. Guardiola varaði sína leikmenn við því að hann muni horfa eftir því hverjir þeirra ætli eitthvað að fara að slaka á. „Þegar mér finnst að einhver haldi að þetta sé búið eða að þetta líti svo vel út, þá er sá leikmaður ekki að fara að spila hjá mér,“ sagði Pep Guardiola á blaðamannafundi í gær. Pep Guardiola sees 'terribly important' City opportunity coming up #mcfc https://t.co/ChlBVGVgeR— Manchester City News (@ManCityMEN) March 1, 2021 „Ég er gæddur því innsæi að vita nákvæmlega hvenær leikmenn eru ekki tilbúnir í það að gera það sem við ætlum okkur að gera,“ sagði Guardiola. Manchester City liðið hefur ekki tapað síðan í nóvember og á nú möguleika á því að vinna fjórfalt því liðið er enn með í öllum keppnum. „Við getum alltaf gert betur og það er markmiðið. Sérstaklega getur hver og einn bætt sinn leik. Allir leikmenn eiga að geta gert betur og þegar það gerist hjá öllum í liðinu þá verður liðið betra,“ sagði Guardiola. City græddi á því um helgina að öll liðin í næstu sætum á eftir þeim, Manchester United, Leicester City, West Ham United og Chelsea, töpuðu stigum. 2 0 wins in a row is not enough for Guardiola:"As much as we win and as much as we get results, as much we have to demand and be over the players and say we can do better." pic.twitter.com/BjvHXmQguI— Goal (@goal) March 1, 2021 Guardiola hefur engu að síður áhyggjur af því að þetta gæti hrunið hjá Manchester City. „Liverpool liðið er meistari en ekki við. Til að ná titlinum þá þurfum við enn að vinna átta, níu eða tíu leiki og það er mikið af leikjum. Það eru ótrúleg lið sem lenda í vandræðum í fjórum eða fimm leikjum í röð. Það getur líka gerst fyrir okkur,“ sagði Guardiola. „Það gerðist á síðasta tímabili og við lentum líka í því í byrjun á þessu tímabili. Við gáum ekki unnið þrjá leiki í röð í byrjun tímabils. Það er ástæðan fyrir því að við megum ekki slaka neitt á,“ sagði Pep Guardiola.
Enski boltinn Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Fleiri fréttir Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Heldur tryggð við Aston Villa þrátt fyrir áhuga annarra liða „Sýna að þetta sé Chelsea FC en ekki Cole Palmer FC“ Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Segir að Ten Hag sé búinn að vera Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Var sagður taka við Liverpool en hefur rætt við West Ham „Kem því ekki í orð hversu léleg frammistaðan var“ Hjólaði alla leið frá Mongólíu til að sjá United spila Sjá meira
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti