Stórkostlegt mark Isaks (myndskeið)

Alexander Isak fagnar glæsilegu marki sínu á laugardaginn.
Alexander Isak fagnar glæsilegu marki sínu á laugardaginn. AFP

Sænski sóknarmaðurinn Alexander Isak var á skotskónum þegar Svíþjóð vann öruggan 3:0 sigur gegn Kósóvó í undankeppni HM 2022 í knattspyrnu karla á laugardag.

Hann kom Svíum þá í 2:0 eftir rúmlega klukkutíma leik.

Isak er 22 ára gamall sóknarmaður Real Sociedad á Spáni og vakti athygli fyrir vasklega framgöngu á EM í sumar.

Mark hans á laugardaginn var einkar huggulegt eins og sjá má í myndskeiðinu hér að neðan og er vísast ekki til þess fallið að minnka áhuga stærri félaga á honum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert