Jafntefli í Finnlandi

Katla Tryggvadóttir skoraði fyrra mark Íslands í dag.
Katla Tryggvadóttir skoraði fyrra mark Íslands í dag. mbl.is/Árni Sæberg

U18 ára kvennalandslið Íslands í fótbolta gerði 2:2 jafntefli gegn liði Finna í Finnlandi fyrr í dag. Sömu lið mættust á miðvikudaginn og þá sigraði Finnland 1:0.

Ísland komst í tvígang yfir en í bæði skipti jöfnuðu Finnarnir. 

Írena Héðinsdóttir kom Íslandi yfir rétt fyrir hálfleik en aðeins tveimur mínútum síðar jafnaði Finnland metin. Þóra Björg Stefánsdóttir kom Íslandi aftur yfir á 54. mínútu en Finnar jöfnuðu svo aftur á 81. mínútu og við stóð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert