Eldvarnarhurðir lokuðust ekki þegar eldsvoði varð sautján að bana Árni Sæberg skrifar 10. janúar 2022 23:00 Viðbragðsaðilar að störfum í gær. AP Photo/Yuki Iwamura Sautján létust, þar af átta börn, þegar eldur kviknaði í íbúðablokk í New York. Rannsakendur telja að eldvarnarhurðir hafi ekki virkað sem skyldi með þeim afleiðingum að reykur barst á allar nítján hæðir hússins.
Svo virðist sem eldur hafi kviknað út frá hitablásara í einni íbúð blokkarinnar. Í frétt AP fréttaveitunnar segir að eldurinn sjálfur hafi aðeins skemmt lítinn hluta byggingarinnar en að reyk hafi borið frá íbúðinni um alla blokkina með skelfilegum afleiðingum. Upphaflega var talið að nítján hafi látist í eldsvoðanum en staðfest tala látinna er sautján, þar af átta börn. Þá liggja tugir íbúa á sjúkrahúsi, sumir í lífshættu. Slökkviliðsstjóri New York borgar segir dyr íbúðarinnar þar sem eldurinn kviknaði og dyr á fimmtándu hæð hefðu átt að lokast sjálfkrafa til að hemja útbreiðslu elds og reyks. Hann segir enn óljóst hvort eldvarnarhurðir hafi bilað eða eitthvað hafi verið sett fyrir þær. Ein biluð eldvarnarhurð geti valdið dauða margra Glenn Corbett, sérfræðingur í eldvörnum, segir lokaðar dyr nauðsynlegar til að temja eld og reyk, sérstaklega í byggingum sem eru án sjálfvirks slökkvibúnaðar. „Það er frekar ótrúlegt að bilun einnar hurðar geti leitt til svo margra dauðsfalla, en þannig er það. Þessar einu dyr spiluðu stórt hlutverk í því að eldurinn dreifðist og að reykur og hiti bárust lóðrétt í gegn um bygginguna,“ segir hann. Slökkviliðsmenn segja þykkan reykjarmökkinn hafa hindrað útgöngu íbúanna. Fórnarlömb hans hafi fundist örend á öllum hæðum hússins. Stefan Beauvogui, fyrrum íbúi hússins, segir að hitakerfi íbúðablokkarinnar hafi um langa hríð verið bilað. Hann hafi því notað þrjá hitablásara yfir vetrartímann. Hann kveðst hafa kvartað yfir ástandinu en að ekkert hafi verið í því gert.
Bandaríkin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Hann hættir bara ekki” Innlent Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Erlent Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Innlent Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Innlent Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Innlent Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Innlent „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Evrópa böðuð bleiku Erlent Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Innlent Fleiri fréttir Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Evrópa böðuð bleiku Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Reyndu aftur að fá málið fellt niður vegna Stormy Daniels Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Sjá meira