Innlent

Aftur greindist enginn innan­­lands

Atli Ísleifsson skrifar
12.707 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 13.782 til viðbótar.
12.707 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 13.782 til viðbótar. Vísir/Vilhelm

Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær, fimmta daginn í röð. Enginn greindist heldur á landamærunum.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. Ellefu eru nú í einangrun, líkt og í gær. Þrettán eru nú í sóttkví, sömuleiðis sami fjöldi og í gær. 1.070 eru í skimunarsóttkví.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 0,5, líkt og í gær. Nýgengi landamærasmita er nú 2,5,sami fjöldi og í gær.

6.058 manns hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

12.707 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 13.782 til viðbótar.

Alls voru tekin 353 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 187 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð. Í fyrri útgáfu fréttarinnar var sagt að fimm hafi greinst á landamærunum í gær. Þar var vísað í smit á landamærum á þriðjudag. Beðist er velvirðingar á þessu. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×