Segir að ef hann verði ekki kosinn forseti fari Messi frá Barcelona Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. mars 2021 16:00 Joan Laporta vill verða forseti Barcelona á nýjan leik. getty/Albert Llop Joan Laporta segir að ef einhver annar en hann verði kosinn forseti Barcelona fari Lionel Messi frá félaginu í sumar. Forsetakosningarnar hjá Barcelona fara fram á sunnudaginn. Laporta þykir líklegastur til að verða kosinn en auk hans eru Victor Font og Toni Freixa í framboði. Laporta var áður forseti Barcelona á árunum 2003-10. Samningur Messis við Barcelona rennur út í sumar og þá getur hann farið frítt frá félaginu sem hann hefur verið hjá frá aldamótum. Messi vildi fara frá Barcelona síðasta sumar en hann var verulega ósáttur við Josep Maria Bartomeu, þáverandi forseta félagsins. Ekkert varð úr því en líklegt þykir að Messi yfirgefi herbúðir Barcelona eftir þetta tímabil. Argentínski snillingurinn hefur meðal annars verið orðaður við Manchester City og Paris Saint-Germain. Laporta segir að hann einn geti komið í veg fyrir að Messi fari frá Barcelona. „Ég er viss um að ef einhver annar en ég vinnur kosningarnar verður Messi ekki lengur hjá félaginu. Samband okkar er gott og það ríkir gagnkvæm virðing milli okkar,“ sagði Laporta. „Við munum gera honum tilboð í takt við stöðu félagsins. Kannski getum við ekki keppt fjárhagslega um hann en Messi stjórnast ekki af peningum. Hann vill ljúka ferlinum á eins háu getustigi og hægt er.“ Messi steig sín fyrstu skref í aðalliði Barcelona á valdatíma Laportas. Hann réði einnig Pep Guardiola til félagsins. Fjárhagsstaða Barcelona er erfið en skuldir félagsins ku nálgast milljarð evra, þrátt fyrir að allir leikmenn liðsins hafi tekið á sig launalækkun vegna kórónuveirufaraldursins. Spænski boltinn, La Liga, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. La Liga er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Spænski boltinn Tengdar fréttir Pep tjáði sig um Bartomeu: Saklaus þar til dómstólarnir sanna annað Pep Guardiola, fyrrverandi knattspyrnustjóri Barcelona og núverandi stjóri Manchester City, segist fylgjast með því sem er að gerast hjá Barcelona. 3. mars 2021 13:30 Fyrrum forseti Barcelona handtekinn og húsleit á Nývangi Það gekk mikið á hjá Barcelona í morgun aðeins nokkrum dögum áður en félagið kýs sér nýjan forseta. 1. mars 2021 11:23 Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ Fótbolti Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Enski boltinn „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Körfubolti Fleiri fréttir Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Krókur Liverpool á móti bragði Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tap Hákons tefur fögnuð PSG Palace á mikilli siglingu Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Óvænt U-beygja í Katalóníu Sjá meira
Forsetakosningarnar hjá Barcelona fara fram á sunnudaginn. Laporta þykir líklegastur til að verða kosinn en auk hans eru Victor Font og Toni Freixa í framboði. Laporta var áður forseti Barcelona á árunum 2003-10. Samningur Messis við Barcelona rennur út í sumar og þá getur hann farið frítt frá félaginu sem hann hefur verið hjá frá aldamótum. Messi vildi fara frá Barcelona síðasta sumar en hann var verulega ósáttur við Josep Maria Bartomeu, þáverandi forseta félagsins. Ekkert varð úr því en líklegt þykir að Messi yfirgefi herbúðir Barcelona eftir þetta tímabil. Argentínski snillingurinn hefur meðal annars verið orðaður við Manchester City og Paris Saint-Germain. Laporta segir að hann einn geti komið í veg fyrir að Messi fari frá Barcelona. „Ég er viss um að ef einhver annar en ég vinnur kosningarnar verður Messi ekki lengur hjá félaginu. Samband okkar er gott og það ríkir gagnkvæm virðing milli okkar,“ sagði Laporta. „Við munum gera honum tilboð í takt við stöðu félagsins. Kannski getum við ekki keppt fjárhagslega um hann en Messi stjórnast ekki af peningum. Hann vill ljúka ferlinum á eins háu getustigi og hægt er.“ Messi steig sín fyrstu skref í aðalliði Barcelona á valdatíma Laportas. Hann réði einnig Pep Guardiola til félagsins. Fjárhagsstaða Barcelona er erfið en skuldir félagsins ku nálgast milljarð evra, þrátt fyrir að allir leikmenn liðsins hafi tekið á sig launalækkun vegna kórónuveirufaraldursins. Spænski boltinn, La Liga, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. La Liga er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Spænski boltinn, La Liga, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. La Liga er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Spænski boltinn Tengdar fréttir Pep tjáði sig um Bartomeu: Saklaus þar til dómstólarnir sanna annað Pep Guardiola, fyrrverandi knattspyrnustjóri Barcelona og núverandi stjóri Manchester City, segist fylgjast með því sem er að gerast hjá Barcelona. 3. mars 2021 13:30 Fyrrum forseti Barcelona handtekinn og húsleit á Nývangi Það gekk mikið á hjá Barcelona í morgun aðeins nokkrum dögum áður en félagið kýs sér nýjan forseta. 1. mars 2021 11:23 Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ Fótbolti Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Enski boltinn „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Körfubolti Fleiri fréttir Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Krókur Liverpool á móti bragði Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tap Hákons tefur fögnuð PSG Palace á mikilli siglingu Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Óvænt U-beygja í Katalóníu Sjá meira
Pep tjáði sig um Bartomeu: Saklaus þar til dómstólarnir sanna annað Pep Guardiola, fyrrverandi knattspyrnustjóri Barcelona og núverandi stjóri Manchester City, segist fylgjast með því sem er að gerast hjá Barcelona. 3. mars 2021 13:30
Fyrrum forseti Barcelona handtekinn og húsleit á Nývangi Það gekk mikið á hjá Barcelona í morgun aðeins nokkrum dögum áður en félagið kýs sér nýjan forseta. 1. mars 2021 11:23