Handbolti

Fyrirliði Alfreðs fékk rautt spjald en fyrsti sigurinn kom samt í hús

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alfreð Gíslason sést hér á hliðarlínunni í leiknum á móti Argentínu í nótt.
Alfreð Gíslason sést hér á hliðarlínunni í leiknum á móti Argentínu í nótt. AP/Pavel Golovkin

Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í þýska handboltalandsliðinu eru komnir á blað á Ólympíuleikunum eftir átta marka sigur á Argentínu í öðrum leik sínum.

Þýska liðið vann 33-25 sigur á Argentínu eftir að hafa verið aðeins einu marki yfir í hálfleik, 14-13. Hornamennirnir Timo Kastening og Marcel Schiller voru markahæstir með sjö mörk hvor. Andreas Wolff var líka flottur í markinu.

Þjóðverjar töpuðu með einu marki á móti Spánverjum í fyrsta leik sínum á mótinu en Argentína hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum.

Uwe Gensheimer, fyrirliði þýska landsliðsins, var að spila sinn tvö hundraðasta landsleik sinn en hann endaði á leiðinlegan hátt. Gensheimer fékk rautt spjald fyrir að skjóta í höfuð markvarðarins Juan Bar í vítakasti. Gensheimer skoraði ekki mark í leiknum.

Heimsmeistarar Dana hafa unnið tvo fyrstu leiki sína á mótinu eftir fimm marka sigur á Egyptalandi í dag, 32-27.

Egyptar voru reyndar einu marki yfir í hálfleik, 15-14. Mikkel Hansen skoraði níu mörk fyrir Dani í leiknum en sjö komu úr vítum. Mathias Gidsel var með átta mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×