Ljóst að ekkert verður úr námuvinnslunni á Suður-Grænlandi Atli Ísleifsson skrifar 7. apríl 2021 12:43 Kristjana hefur fylgst vel með grænlenskum stjórnmálum en hún bjó á Grænlandi í um aldarfjórðungi og var gift Jonathan Motzfeldt, fyrrverandi forsætisráðherra Grænlands til fjölda ára. Kosningabaráttan snerist að stórum hluta um fyrirhugaða námuvinnslu í grennd við bæinn Narsaq. Getty Ljóst má vera að Inuit Ataqatigiit, sem vann mikinn sigur í grænlensku kosningunum í gær, mun stöðva námuvinnsluna á Suður-Grænlandi sem áætlanir voru uppi um. Þetta segir Kristjana Guðmundsdóttir Motzfeldt í samtali við Vísi. Kristjana segir kosningarnar að stórum hluta hafa snúist um námuvinnsluna í Narsaq á Suður-Grænlandi og deilur sem sneru að atvinnusköpun og umhverfismálum. Mikið hefur verið deilt um áætlanir ástralska fyrirtækisins Greenland Minerals um vinnslu á sjaldgæfum málmum í Kvanefjeldsnámunni í grennd við Narsaq. Inuit Ataqatigiit tryggði sér tæplega 37 prósent atkvæða í þingkosningunum í gær og má telja langlíklegast að formaður flokksins, hinn 34 ára Múte B. Egede, verði næsti forsætisráðherra Grænlands og taki þar með við af Kim Kielsen sem hefur þegar viðurkennt ósigur. Þá vann IA sömuleiðis sigur í þremur sveitarfélögum af fimm, þar með talið í sveitarfélaginu Kujalleq á Suður-Grænlandi. Egede sagði í samtali við DR að námuvinnsluverkefnið sé „komið í gröfina“. Rétt sé að hluta á þjóðina og það sé skýr vilji grænlensku þjóðarinnar, og sér í lagi þeirra á Suður-Grænlandi, að stöðva verkefnið. Kristjana hefur fylgst vel með grænlenskum stjórnmálum en hún bjó á Grænlandi í um aldarfjórðungi og var gift Jonathan Motzfeldt, forsætisráðherra Grænlands á árunum 1979 til 1991 og aftur 1997 til 2002. Siumut refsað vegna afstöðu til vinnslunnar og hallarbyltingarinnar Kristjana segir að þetta verði í annað sinn sem annar flokkur en Siumut stjórni landinu frá árinu 1979 þegar heimastjórn var komið á. „Grænlenskir kjósendur voru ekki bara að hegna Siumut vegna afstöðu flokksins til námuvinnslunnar. Lína Siumut var að vera vinnslunni fylgjandi þó að viss klofnings hafi gætt innan flokksins. Kjósendur voru sömuleiðis að hegna flokknum vegna hallarbyltingarinnar í nóvember þegar Erik Jensen tókst að bola Kim Kielsen úr embætti formanns. Á Grænlandi kjósa menn bæði flokka og einstaklinga og það vakti athygli að Kim Kielsen fékk umtalsvert fleiri atkvæði en Jensen, eða um sjö hundruð. Það kæmi mér því ekki á óvart ef Jensen og forysta Siumut muni nú þurfa að hugsa sinn gang.“ Niðurstöður grænlensku þingkosninganna 6. apríl 2021 Inuit Ataqatigiit – 36,6 prósent atkvæða, alls 9.912 atkvæði. Það eru 2.434 fleiri atkvæði en í kosningunum 2018. Siumut – 29,4 prósent atkvæða, alls 7.971. Naleraq – 12 prósent atkvæða, alls 3.249. Demókratar – 9,1 prósent atkvæða, alls 2.452. Atassut – 6,9 prósent atkvæða, alls 1.879. Nunatta Qitornai – 2,4 prósent atkvæða, alls 639. Samarbejdspartiet – 1,4 prósent atkvæða, alls 375. Alls greiddu 27.079 manns atkvæði. Kosningaþátttakan var um 66 prósent. Aðspurð um hvaða áhrif væntanleg valdaskipti muni hafa á vegferð Grænlendinga í átt að sjálfstæði, segir hún þau ekki verða mikil. „Allir þessir flokkar á grænlenska þinginu vilja að Grænland verði sjálfstætt.“ Fé til flugvallaframkvæmda DR segir að stjórn IA muni sömuleiðis væntanlega taka fleiri mál til endurskoðunar, svo sem hvort rétt sé að verja svo stórum hluta af opinberu fé til framkvæmdanna við flugvallagerð í höfuðborginni Nuuk og Ilulissat líkt og áætlanir gera ráð fyrir. Múte Egede og IA-flokkur hans lögðu sömuleiðis áherslu á það í kosningabaráttunni að breytingar verði gerðar á stjórnsýslunni og hún aðlöguð að grænlenskum aðstæðum. Stór hluti stjórnsýslunnar sé nú að danskri uppskrift og vill Egede meina að hún henti ekki þeim skilyrðum sem við lýði eru á Grænlandi. Grænland Tengdar fréttir Inuit Ataqatigiit vann mikinn sigur í grænlensku kosningunum Inuit Ataqatigiit (IA) vann mikinn sigur í grænlensku þingkosningnunum sem fram fóru í gær. Flokkurinn fékk um 37 prósent atkvæða og má því telja langlíklegast að formaðurinn, hinn 34 ára Múte B. Egede, verði næsti forsætisráðherra Grænlands og taki þar með við af Kim Kielsen sem hefur þegar viðurkennt ósigur. 7. apríl 2021 07:45 Kosningar á Grænlandi: Innanflokksátök, erlendar fjárfestingar og stórveldakapphlaup Ný forysta grænlenska stjórnmálaflokksins Siumuts ákvað á síðustu stundu að skipta Kim Kielsen, fyrrverandi formanni flokksins og forsætisráðherra Grænlands, út sem fulltrúa flokksins í sjónvarpskappræðum sem fram fóru á föstudaginn dag í tengslum við þingkosningarnar sem fram fara á Grænlandi á þriðjudaginn. 5. apríl 2021 00:06 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Búast má við slyddu Veður Fleiri fréttir Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Sjá meira
Kristjana segir kosningarnar að stórum hluta hafa snúist um námuvinnsluna í Narsaq á Suður-Grænlandi og deilur sem sneru að atvinnusköpun og umhverfismálum. Mikið hefur verið deilt um áætlanir ástralska fyrirtækisins Greenland Minerals um vinnslu á sjaldgæfum málmum í Kvanefjeldsnámunni í grennd við Narsaq. Inuit Ataqatigiit tryggði sér tæplega 37 prósent atkvæða í þingkosningunum í gær og má telja langlíklegast að formaður flokksins, hinn 34 ára Múte B. Egede, verði næsti forsætisráðherra Grænlands og taki þar með við af Kim Kielsen sem hefur þegar viðurkennt ósigur. Þá vann IA sömuleiðis sigur í þremur sveitarfélögum af fimm, þar með talið í sveitarfélaginu Kujalleq á Suður-Grænlandi. Egede sagði í samtali við DR að námuvinnsluverkefnið sé „komið í gröfina“. Rétt sé að hluta á þjóðina og það sé skýr vilji grænlensku þjóðarinnar, og sér í lagi þeirra á Suður-Grænlandi, að stöðva verkefnið. Kristjana hefur fylgst vel með grænlenskum stjórnmálum en hún bjó á Grænlandi í um aldarfjórðungi og var gift Jonathan Motzfeldt, forsætisráðherra Grænlands á árunum 1979 til 1991 og aftur 1997 til 2002. Siumut refsað vegna afstöðu til vinnslunnar og hallarbyltingarinnar Kristjana segir að þetta verði í annað sinn sem annar flokkur en Siumut stjórni landinu frá árinu 1979 þegar heimastjórn var komið á. „Grænlenskir kjósendur voru ekki bara að hegna Siumut vegna afstöðu flokksins til námuvinnslunnar. Lína Siumut var að vera vinnslunni fylgjandi þó að viss klofnings hafi gætt innan flokksins. Kjósendur voru sömuleiðis að hegna flokknum vegna hallarbyltingarinnar í nóvember þegar Erik Jensen tókst að bola Kim Kielsen úr embætti formanns. Á Grænlandi kjósa menn bæði flokka og einstaklinga og það vakti athygli að Kim Kielsen fékk umtalsvert fleiri atkvæði en Jensen, eða um sjö hundruð. Það kæmi mér því ekki á óvart ef Jensen og forysta Siumut muni nú þurfa að hugsa sinn gang.“ Niðurstöður grænlensku þingkosninganna 6. apríl 2021 Inuit Ataqatigiit – 36,6 prósent atkvæða, alls 9.912 atkvæði. Það eru 2.434 fleiri atkvæði en í kosningunum 2018. Siumut – 29,4 prósent atkvæða, alls 7.971. Naleraq – 12 prósent atkvæða, alls 3.249. Demókratar – 9,1 prósent atkvæða, alls 2.452. Atassut – 6,9 prósent atkvæða, alls 1.879. Nunatta Qitornai – 2,4 prósent atkvæða, alls 639. Samarbejdspartiet – 1,4 prósent atkvæða, alls 375. Alls greiddu 27.079 manns atkvæði. Kosningaþátttakan var um 66 prósent. Aðspurð um hvaða áhrif væntanleg valdaskipti muni hafa á vegferð Grænlendinga í átt að sjálfstæði, segir hún þau ekki verða mikil. „Allir þessir flokkar á grænlenska þinginu vilja að Grænland verði sjálfstætt.“ Fé til flugvallaframkvæmda DR segir að stjórn IA muni sömuleiðis væntanlega taka fleiri mál til endurskoðunar, svo sem hvort rétt sé að verja svo stórum hluta af opinberu fé til framkvæmdanna við flugvallagerð í höfuðborginni Nuuk og Ilulissat líkt og áætlanir gera ráð fyrir. Múte Egede og IA-flokkur hans lögðu sömuleiðis áherslu á það í kosningabaráttunni að breytingar verði gerðar á stjórnsýslunni og hún aðlöguð að grænlenskum aðstæðum. Stór hluti stjórnsýslunnar sé nú að danskri uppskrift og vill Egede meina að hún henti ekki þeim skilyrðum sem við lýði eru á Grænlandi.
Niðurstöður grænlensku þingkosninganna 6. apríl 2021 Inuit Ataqatigiit – 36,6 prósent atkvæða, alls 9.912 atkvæði. Það eru 2.434 fleiri atkvæði en í kosningunum 2018. Siumut – 29,4 prósent atkvæða, alls 7.971. Naleraq – 12 prósent atkvæða, alls 3.249. Demókratar – 9,1 prósent atkvæða, alls 2.452. Atassut – 6,9 prósent atkvæða, alls 1.879. Nunatta Qitornai – 2,4 prósent atkvæða, alls 639. Samarbejdspartiet – 1,4 prósent atkvæða, alls 375. Alls greiddu 27.079 manns atkvæði. Kosningaþátttakan var um 66 prósent.
Grænland Tengdar fréttir Inuit Ataqatigiit vann mikinn sigur í grænlensku kosningunum Inuit Ataqatigiit (IA) vann mikinn sigur í grænlensku þingkosningnunum sem fram fóru í gær. Flokkurinn fékk um 37 prósent atkvæða og má því telja langlíklegast að formaðurinn, hinn 34 ára Múte B. Egede, verði næsti forsætisráðherra Grænlands og taki þar með við af Kim Kielsen sem hefur þegar viðurkennt ósigur. 7. apríl 2021 07:45 Kosningar á Grænlandi: Innanflokksátök, erlendar fjárfestingar og stórveldakapphlaup Ný forysta grænlenska stjórnmálaflokksins Siumuts ákvað á síðustu stundu að skipta Kim Kielsen, fyrrverandi formanni flokksins og forsætisráðherra Grænlands, út sem fulltrúa flokksins í sjónvarpskappræðum sem fram fóru á föstudaginn dag í tengslum við þingkosningarnar sem fram fara á Grænlandi á þriðjudaginn. 5. apríl 2021 00:06 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Búast má við slyddu Veður Fleiri fréttir Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Sjá meira
Inuit Ataqatigiit vann mikinn sigur í grænlensku kosningunum Inuit Ataqatigiit (IA) vann mikinn sigur í grænlensku þingkosningnunum sem fram fóru í gær. Flokkurinn fékk um 37 prósent atkvæða og má því telja langlíklegast að formaðurinn, hinn 34 ára Múte B. Egede, verði næsti forsætisráðherra Grænlands og taki þar með við af Kim Kielsen sem hefur þegar viðurkennt ósigur. 7. apríl 2021 07:45
Kosningar á Grænlandi: Innanflokksátök, erlendar fjárfestingar og stórveldakapphlaup Ný forysta grænlenska stjórnmálaflokksins Siumuts ákvað á síðustu stundu að skipta Kim Kielsen, fyrrverandi formanni flokksins og forsætisráðherra Grænlands, út sem fulltrúa flokksins í sjónvarpskappræðum sem fram fóru á föstudaginn dag í tengslum við þingkosningarnar sem fram fara á Grænlandi á þriðjudaginn. 5. apríl 2021 00:06