Þrettán ára og gerir upp gamla traktora

Valdimar Kristinn Árnason hefur varið óteljandi stundum við að gera …
Valdimar Kristinn Árnason hefur varið óteljandi stundum við að gera upp traktora undanfarið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þeir eru eflaust ekki margir þrettán ára krakkar sem verja öllum sínum frítíma í að gera upp gamla traktora. Á Vatnsleysuströndinni leynist einn slíkur, Valdimar Kristinn Árnason hefur varið óteljandi stundum í smiðju fjölskyldu sinnar við að taka í sundur gamlar dráttarvélar, gera við þær og koma þeim saman aftur.

„Ég byrjaði á þessu í fyrra, þegar ég var 12 ára, þá fór ég að skrúfa aðeins í traktor af gerðinni Deutz D30 árgerð 1960. Nú ári síðar er hann orðinn gangfær,“ segir Valdimar Kristinn Árnason, 13 ára strákur sem dvelur löngum stundum í skemmu fjölskyldu sinnar á Vatnsleysuströnd og gerir þar upp gamla traktora. „Ég þurfti að taka mótorinn í sundur og eiginlega stútaði ég honum öllum alveg í smáhluta, tók bita fyrir bita og lagaði og smurði og púslaði saman aftur. Ég setti líka utanáliggjandi túrbó á hann, til að gera hann kraftmeiri. Ég læri þetta jafnóðum, skref fyrir skref,“ segir Valdimar sem býr svo vel að tveir eldri bræður hans og pabbi eru líka miklir hagleiksmenn þegar kemur að því að taka gamlar vélar í sundur og laga þær. Hann getur því leitað ráða hjá þeim og hefur verið með þeim í skemmunni frá því hann man eftir sér.

Valdimar við traktorinn sinn Deutz D30 árgerð 1960 sem hann …
Valdimar við traktorinn sinn Deutz D30 árgerð 1960 sem hann gerði upp. Kindurnar láta sér fátt um finnast. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mikið maus og tímafrekt

Þegar Valdimar er spurður að því hvað heilli hann við að vera á kafi í gömlum vélum, segir hann að honum finnist það einfaldlega gaman. „Þetta er mikið maus og tímafrekt, óteljandi vinnustundir liggja að baki, en mér er alveg sama því þetta er það skemmtilegasta sem ég geri. Núna er ég að gera upp annan traktor, Deutz D3500, hann er stærri og nýrri en hinn, 1966 módel. Hann var í ágætu standi þegar hann kom hér inn, gangfær, en ég tók úr honum tankinn og þreif hann, skipti um eina slöngu, setti í hann nýjan rafgeymi og smurði allt sem þurfti,“ segir Valdimar og gengur að þriðja Deutzinum sem er innst í skemmunni og bíður þess líka að verða tekinn í gegn. „Við erum búnir að strípa hann til að geta lakkað hann og við erum líka búnir að smíða á hann ný bretti. Við pabbi og bræður mínir höfðum uppi á þessum Deutz-traktorum hér á nágrannabæjunum. Þeir verða ekki tilbúnir fyrr en eftir ár eða svo. Pabbi er mjög hrifinn af Deutz, af því þeir eru vel smíðaðir traktorar og sterkir.“

Þvotturinn angaði af bensíni

Feðgarnir eru allir fjórir á kafi í traktorum og bílum og uppi á gömlum uppgerðum pallbíl inni í skemmu trónir glansandi rauður og fínn Farmal Cub, eða Kubburinn eins og Valdimar kallar hann.

Valdimar finnst gaman að keyra Deutzinn með túrbó utan á.
Valdimar finnst gaman að keyra Deutzinn með túrbó utan á. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þetta er elsti traktorinn hér, fyrsti traktor Magnúsar afa míns, árgerð 1940. Hann er gangfær og í fínu standi, en ég tók ekki þátt í að gera hann upp, ég var of ungur þá. Pabbi og bræður mínir sá um það ásamt Erlendi Egilssyni vini okkar, en hann hefur gert upp marga trukka og er mikill vélakarl sem við höfum allir lært af. Pallbíllinn sem er árgerð 1947 er líka gangfær en þessir tveir eru aðallega keyrðir á sumrin,“ segir Valdimar og Árni faðir hans bætir við að þakka megi Ragnari föðurbróður hans að Kubburinn skemmdist ekki, því vegna nálægðar við saltan sjóinn ryðgi allt hratt og fljótt sem stendur úti á þessu svæði.

„Ragnar sá um að Kubburinn ryðgaði ekki, hann kústaði traktorinn reglulega með menju og bátamálningu, greip með sér klíninga í tíma og ótíma. Hann negldi líka utan um Kubbinn skúr, sem reyndar sprakk og fauk í einu febrúarveðrinu, en karlarnir smíðuðu nýjan skúr sem fauk svo tveimur dögum seinna í öðru eins veðri.“

Brynhildur móðir Valdimars segir hann vera handlaginn og hafa gott verkvit, hann hafi mikið verið í fjarstýrðum bílum þegar hann var yngri og smíðaði sér boddí á einn slíkan.

Það kemur sér vel að Valdimar er handlaginn og með …
Það kemur sér vel að Valdimar er handlaginn og með gott verkvit. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þetta vélastúss hefur stundum ófyrirséðar afleiðingar, einu sinni tók hann bensíntank af fjórhjóli sem þurfti að þrífa og gerði það samviskusamlega, en skellti honum svo á hitaveitugrindina í þvottahúsinu til að þurrka hann. Þvotturinn ilmað vel af bensíni þegar hann var orðinn þurr á snúrunum,“ segir hún og hlær.

Þegar Valdimar er spurður að því hvað jafnöldrum hans finnist um að hann stundi það að gera upp gamla traktora, segir hann að þeim finnst það skemmtilegt og kúl að hann sé að bauka í þessu. „Þetta er mjög róandi og mér líður vel hér í skemmunni,“ segir Valdimar sem hefur hug á að mennta sig í bifvélavirkjun eða öðru því tengdu í framtíðinni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert