Fimm ára fangelsi fyrir gróf brot gegn tveimur konum Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 1. febrúar 2023 23:35 Fram kemur í dómnum að framburður mannsins sé í litlu samræmi við þau gögn sem liggja fyrir. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í fimm ára fangelsi fyrir nauðgun, stórfellda líkamsárás og stórfellt brot í nánu sambandi. Um var að ræða brot gegn tveimur konum í aðskildum málum en bæði brotin áttu sér stað þann 1. ágúst 2022.
Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa ráðist að fyrrverandi unnustu sinni og sambýliskonu sinni með ofbeldi, hótunum og ólögmætri nauðung og haft samræði og önnur kynferðismök við hana, án hennar samþykkis, utandyra og inni í bifreið við verkstæði í Hafnarfirði. Þá var hann var einnig sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás gegn annarri konu síðar þennan sama dag. Leitaði skjóls hjá ókunnugum Hvað brotin gegn fyrri konunni varðaði var maðurinn ákærður fyrir tilraun til manndráps, nauðgun og stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa brotið rúðu í bíl, slegið konuna ítrekað höfuð og líkama, dregið hana út úr bílnum, hrint henni á malbikið, tekið hana ítrekað hálstaki og kverkataki, rifið í hár hennar, haldið hníf upp að hálsi hennar, þvingað hana til að liggja ofan á glerbrotum og hótað henni lífláti og líkamsmeiðingum, með því að segjast ætla að skera hana á háls og klippa af henni hárið. Á meðan á framangreindu stóð neyddi hann konuna til munnmaka, samræðis og endaþarmsmaka á meðan hún reyndi ítrekað að fá hann til að hætta. Fram kemur í dómi að maðurinn hafi neytt fíkniefna umræddan dag. Fram kemur að konan hafi flúið af vettvangi og leitað aðstoðar hjá ókunnugu fólki sem bjó í nágrenninu. Hún hafi verið með mikla líkamlega áverka og í miklu uppnámi samkvæmt framburði vitna. Við skoðun á neyðarmóttöku fundust áverkar víða á konunni. Fram kemur í skýrslu að hún hafi verið bólgin í andliti með glóðarauga á báðum augum en mun meira hægra megin, með bólgið nef og mar á vörum og hár í óreiðu og flækju að aftan. Þá var hún með marbletti á hálsi undir kjálkabörðum, mörg minni húðsár á fótum og stóra marbletti á báðum hnjám. Þá hafi hún verið miður sín og virkað hrædd og niðurbrotin. Þá segir í matsgerð læknis að allflestir áverkarnir séu ferskir, sem samræmist því að þeir hafi komið til aðfaranótt 1. ágúst 2022. Fram kemur að framburður konunnar fyrir dómi hafi verið stöðugur og trúverðugur og í samræmi við önnur gögn sem liggja fyrir í málinu, og þá sérstaklega frá neyðarmóttöku, bráðamóttöku og matsgerð réttarlæknis. Sagði konuna hafa samþykkt ofbeldið Maðurinn neitaði sök í málinu. Hann gaf þrisvar skýrslu við rannsókn málsins og var framburður hans í meginatriðum á sama veg en lýsingar hans á atvikum þóttu oft takmarkaðar. Byggði hann á því að samþykki konunnar hefði legið fyrir til kynmaka og hálstaks og að ofbeldi hefði annars verið hluti af kynmökum sem konan hefði samþykkt. Fram kemur í dómnum að framburður mannsins sé í litlu samræmi við þau gögn sem liggja fyrir. Þá hafi hann gefið takmarkaðar skýringar á ástandi konunnar. Þá hafi ekkert komið fram sem gat gefið manninum réttmæta ástæðu til að ætla að fyrir lægi samþykki konunnar til kynmaka eða fyrir því að hann beitti hana ofbeldi eða hótaði henni. Maðurinn hefur tvisvar sinnum áður verið sakfelldur fyrir ofbeldisbrot. Í niðurstöðu dómsins kemur fram að maðurinn eigi sér engar málsbætur; atlaga hans hafi verið einstaklega gróf, ófyrirleitin og langvinn en gögn benda til þess að samskipti hans og konunnar á vettvangi hafi staðið í rúmar tvær klukkustundir. Þá hafi brotið haft alvarlegar líkamlegar og andlegar afleiðingar fyrir konuna og með því hafi hann brotið gróflega gegn kynfrelsi hennar. Þá kemur fram að nauðgunin hafi verið „sérstaklega gróf og niðurlægjandi.“ Maðurinn var þó sýknaður af því að hafa gerst sekur um tilraun til manndráps og var brotið heimfært á varakröfu ákæruvaldsins, það er sérstaklega hættulega líkamsárás, nauðgun og stórfellt brot í nánu sambandi. Fimm ára fangelsi Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás gegn annarri konu sem einnig átti sér stað þann 1. ágúst 2022. Brotið átti sér stað í bíl. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa slegið konuna ítrekuðum hnefahöggum í andlitið og í eitt skipti slegið hana í andlitið með olnboga, rifið í hár hennar, sparkað í andlit hennar, tekið hana hálstaki og þrengt að öndunarvegi hennar og dregið hana síðan út úr bifreiðinni. Maðurinn neitaði sök að öðru leyti en því að hafa slegið konuna einu sinni með krepptum hnefa í andlitið og ýtt henni. Tekið er fram í dómnum að maðurinn og konan sem um ræðir séu nú í nánu sambandi og hafi verið hittast um tíma þegar brotið átti sér stað. Með læknisvottorðum sem lágu fyrir og að hluta með framburði konunnar taldi dómurinn sannað að hún hefði hlotið umrædda áverka í samskiptum sínum við manninn. Sannað þótti að maðurinn hefði slegið hana ítrekuðum hnefahöggum í andlitið og sparkað einu sinni í andlit hennar en hann var öðru leyti sýknaður samkvæmt ákæru. Þótti hæfilega ákveðin refsing vera fangelsi í fimm ár en til frádráttar kemur óslitið gæsluvarðhald sem maðurinn hefur sætt frá 2. ágúst 2022. Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur. Uppfært 2. febrúar klukkan 08:30 Í fyrri útgáfu stóð að maðurinn hefði verið dæmdur fyrir tilraun til manndráps. Hann var ákærður fyrir það en sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Reykjavík Hafnarfjörður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Erlent Fleiri fréttir Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Sjá meira