Chelsea bikarmeistari eftir markaleik

Leikmenn Chelsea fagna bikarmeistaratitlinum.
Leikmenn Chelsea fagna bikarmeistaratitlinum. Ljósmynd/Chelsea

Chelsea tryggði sér í dag bikarmeistaratitil kvenna í enska fótboltanum með 3:2-sigri á Manchester City á Wembley-leikvanginum í London.

Nýtt áhorfendamet var slegið á leiknum því 49.094 stuðningsmenn lögðu leið sína á Wembley-völlinn, sem er nýtt met í bikarkeppninni.

Ástralski markahrókurinn Sam Kerr kom Chelsea yfir á 33. mínútu en Lauren Hemp jafnaði á 42. mínútu og var staðan í hálfleik 1:1.

Erin Cuthbert kom Chelsea aftur yfir á 63. mínútu en aftur jafnaði City, nú á 89. mínútu með marki frá Hayley Raso, og því þurfti að framlengja.

Þar skoraði Kerr sigurmarkið með sínu öðru marki á 99. mínútu. Kerr hefur farið á kostum með Chelsea á leiktíðinni og skorað 20 mörk í 20 leikjum. 

Chelsea tryggði sér enska meistaratitilinn á dögunum og vinnur því tvöfalt í ár. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert