Guðrún Hafsteinsdóttir vill fyrsta sætið í Suðurkjördæmi Kristín Ólafsdóttir skrifar 24. febrúar 2021 21:27 Guðrún Hafsteinsdóttir fyrrverandi formaður Samtaka iðnaðarins sækist eftir fyrsta sætinu í Suðurkjördæmi. Páll Magnússon vermdi sætið í síðustu kosningum. Guðrún Hafsteinsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka iðnaðarins og markaðsstjóri Kjörís, býður sig fram í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem fram fer í maí. Þetta tilkynnti hún á aðalfundi Sjálfstæðisfélags Hveragerðis í kvöld.
Guðrún segir í tilkynningu um framboðið að síðustu vikur og mánuði hafi hún fengið mikla hvatningu víðsvegar úr kjördæminu til að gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðismanna. Hún kveðst þakklát öllum sem hafa stutt hana og hvatt. „Suðurkjördæmi býr yfir miklum tækifærum sem brýnt er að efla. Ég er tilbúin að taka þátt í þeirri vinnu og tel að reynsla mín og þekking muni nýtast vel. Í Suðurkjördæmi er iðandi og gott mannlíf og hér höfum við allt sem þarf til að vera leiðandi á öllum sviðum atvinnulífsins. Ég trúi því að saman getum við eflt atvinnugreinar okkar og bætt lífskjör okkar sem hér búum og störfum,“ segir Guðrún. Páll Magnússon þingmaður Sjálfstæðisflokksins var í fyrsta sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi í síðustu Alþingiskosningum. Hann leiddi listann einnig í kosningunum árið 2016, þegar hann var fyrst kjörinn á þing fyrir flokkinn. Ekki náðist í Pál við vinnslu fréttarinnar í kvöld. Lengst af starfað hjá fjölskyldufyrirtækinu Kjörís Guðrún er fædd 9. febrúar 1970 og er dóttir hjónanna Laufeyjar Valdimarsdóttur og Hafsteins Kristinssonar. Guðrún er í sambúð með Hans Kristjáni Einarssyni Hagerup, gullsmið og eiga þau samtals sex börn. Hún er með stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Suðurlands, B.A gráðu í mannfræði frá HÍ 2008 og þá hefur hún lokið diplóma námi í jafnréttisfræðum einnig frá HÍ. Hún hefur starfað nær allan sinn starfsferil hjá fyrirtæki fjölskyldunnar Kjörís ehf. í Hveragerði. Síðastliðinn áratug hefur Guðrún setið í stjórnum margra fyrirtækja og félaga. Hún var kjörin formaður Samtaka iðnaðarins árið 2014 og var þar formaður til 2020. Þá hefur hún einnig átt sæti í stjórn Samtaka atvinnulífsins, Háskóla Reykjavíkur, Bláa Lónsins og Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.
Sjálfstæðisflokkurinn Alþingiskosningar 2021 Suðurkjördæmi Hveragerði Tengdar fréttir Miðflokkurinn í vanda á landsbyggðinni en Viðreisn og Píratar sækja á Færa má rök fyrir því að Miðflokkurinn sé í vanda á landsbyggðinni ef litið er á niðurstöður nýrrar könnunar Maskínu fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar um fylgi flokkanna í Norðvestur,- Norðaustur- og Suðurkjördæmi. 24. febrúar 2021 10:00 Allir vilja komast á Alþingi Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir ómögulegt að spá fyrir um hvernig fer í slag um efsta sæti á lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs á Suðurlandi. 22. febrúar 2021 14:05 Kosningar 2021: Stjórnmál á tímum sóttarinnar Tiltölulega litlar breytingar er að sjá á fylgi flokkanna í nýrri skoðanakönnun Maskínu. Sjálfstæðisflokkurinn heldur ágætum sjó og er sá eini sem segja má að njóti umtalsverðs fylgis – stöðugt með vel yfir fimmtung atkvæða. Hefur þó dalað í öðrum nýlegum könnunum, svo sem hjá MMR. Aðrir flokkar ná ekki yfir fimmtán prósenta fylgi könnun Maskínu. 22. febrúar 2021 06:45 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Erlent Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Innlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Innlent Fleiri fréttir Tækifærum fækkar til að sjá svona flugvélar fljúga Segir hin sigurstranglegu hafa tromp á hendi Pétur Jökull ákærður í stóra kókaínmálinu Nýir prestar og nýir djáknar mættir til starfa Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Kjósendur eiga miserfitt með að ákveða sig Deginum ljósara að það verði ekki veitt í sumar Spenna við Svartsengi, hvalveiðar í uppnámi og flugvélar í beinni Utanríkisráðuneytið harmar skort á kjörseðlum Bjarni í heimsókn í Malaví Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru „Ömurleg staða að vera settur í“ Þróttur lætur þríhyrninginn ekki af hendi „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsti eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Sjá meira
Miðflokkurinn í vanda á landsbyggðinni en Viðreisn og Píratar sækja á Færa má rök fyrir því að Miðflokkurinn sé í vanda á landsbyggðinni ef litið er á niðurstöður nýrrar könnunar Maskínu fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar um fylgi flokkanna í Norðvestur,- Norðaustur- og Suðurkjördæmi. 24. febrúar 2021 10:00
Allir vilja komast á Alþingi Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir ómögulegt að spá fyrir um hvernig fer í slag um efsta sæti á lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs á Suðurlandi. 22. febrúar 2021 14:05
Kosningar 2021: Stjórnmál á tímum sóttarinnar Tiltölulega litlar breytingar er að sjá á fylgi flokkanna í nýrri skoðanakönnun Maskínu. Sjálfstæðisflokkurinn heldur ágætum sjó og er sá eini sem segja má að njóti umtalsverðs fylgis – stöðugt með vel yfir fimmtung atkvæða. Hefur þó dalað í öðrum nýlegum könnunum, svo sem hjá MMR. Aðrir flokkar ná ekki yfir fimmtán prósenta fylgi könnun Maskínu. 22. febrúar 2021 06:45