Menning

Stjörnur tískuheimsins minnast André Leon Talley

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
André Leon Talley skilur eftir sig gífurlega arfleifð í heimi tísku og menningar.
André Leon Talley skilur eftir sig gífurlega arfleifð í heimi tísku og menningar. Instagram: @andreltalley

Tísku goðsögnin og brautryðjandinn André Leon Talley féll frá fyrr í vikunni, 73 ára gamall.

Talley starfaði meðal annars sem listrænn stjórnandi bandaríska Vogue og var þar lengi hægri hönd ritstjórans Anna Wintour. Tískublaðamennska var hans ástríða í gegnum lífið og hafði meðal annars mótandi áhrif á tímarit á borð við W magazine, Interview Magazine og New York Times. Einnig gegndi hann hlutverki dómara í tískuþáttunum og raunveruleika seríunni America’s Next Top Model

Talley er talinn hafa rutt brautina fyrir svartar fyrirsætur í bransanum og ýtt undir meiri fjölbreytileika í tískuheiminum almennt. Hans er jafnframt minnst sem bráðgáfuðum og tímaritið GQ segir hann hafa fært tískuheiminum vitsmunaleg heilindi (e. Intellectual Integrity). 

Talley hafði gífurleg áhrif á samstarfsfólk sitt í gegnum lífs vegferð sína en ótal margar stjörnur tískuheimsins hafa minnst Talley á samfélagsmiðlum og heiðrað minningu hans. Í hópi þeirra var meðal annars Edward Enninful ritstjóri breska Vogue. Enningful deildi mynd á Instagram þar sem hann skrifaði: „Hvíldu í friði kæri André. Án þín þá væri enginn ég. Takk fyrir að ryðja brautina.“

Breska ofurfyrirsætan Kate Moss deildi fallegri mynd inn á Instagram síðu módelskrifstofu sinnar þar sem hún bað André að hvíla í friði.

Instagram síða breska Vogue birti brosandi mynd af Talley þar sem þau fóru stuttlega yfir feril hans og skrifuðu meðal annars að hann hafi haft gífurleg áhrif á svarta hönnuði og fyrirsætur og unnið hörðum höndum að því að búa til meira rými fyrir fjölbreytileikann í tískuheiminum.

Bandaríska Vogue deildi sömuleiðis virðingarvotti til heiðurs Talley á Instagram með tveimur færslum þar sem þau fóru yfir ótrúlega visku hans á sögu tískunnar, stórkostlega orku, hæfileika og arfleifð.

Skóhönnuðurinn Brian Atwood birti glæsilega mynd af Talley í Parísarborg með Eiffel turninn í bakgrunni og skrifaði: „Hvíldu í krafti Andre, þú varst sannkallaður original með hjarta úr gulli.“

Fatahönnuðurinn Diane von Furstenberg og André Leon Talley áttu í áratuga vináttu og birti hún fallegan texta til heiðurs honum inn á Instagram ásamt myndum af þeim vinunum í gegnum tíðina.

Riccardo Tisci, listrænn stjórnandi hjá Burberry, skrifaði á Instagram síðu sína að hann verði alltaf þakklátur fyrir þá trú sem Talley hafði á honum, stöðuga leiðsögn hans og hvernig Talley náði með fallegu sál sinni alltaf að skilja listræna sýn Tisci.

Tískuhúsið Oscar de la Renta skrifaði á Instagram að Talley hafi verið mikill kennari, samstarfsmaður og vinur og birti gamla mynd af Oscar de la Renta sjálfum með Talley með hópi af fyrirsætum.

Súpermódelið Linda Evangelista deildi mynd af sér með blátt hár þar sem Talley hélt utan um hana klæddur í glæsileg ljósblá jakkaföt með hatt. Undir myndina skrifar hún að Talley sé goðsögn og brautryðjandi eins og flestir virðast vera sammála um.

Arfleifð André Leon Talley mun lifa áfram með þeirri mikilvægu vinnu sem hann lagði í tískuheiminn ásamt fallegu sögunum, skrifunum, hugmyndunum og viskunni sem hann skilur eftir sig.


Tengdar fréttir

André Leon Tall­ey er fallinn frá

André Leon Talley, tískublaðamaður og fyrrverandi stjórnandi hjá bandaríska tímaritinu Vogue, er látinn, 73 ára að aldri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×